... en ég er komin með leið á blogginu. Ég veit að Esther hafði mikla trú á mér en ég entist ekki árið í þessu. Þið finnið mig annars staðar á netinu.
Inga Sif, sú sem er farin á MySpace og er að hugsa um FaceBook líka
þriðjudagur, 6. nóvember 2007
föstudagur, 19. október 2007
Ji dúddi
Vitið þið í hverju ég lenti í gær!
Við Karen vinkona ætluðum saman út að borða og ákváðum að hittast á miðri leið sem var samkvæmt okkar útreikningum Kringlan. Karen lagði bílnum sínum undir hjá gamla Hard Rock og svo héldum við á Asíu. Við komum til baka í Kringluna upp úr klukkan 22 og þá var planið fullt af einhverjum "svaka cool" bílum og unglingum. Ég fékk bara nett sjokk, bara að upplifa gömlu Essoplans-stemninguna aftur nema þetta var í svo litlu rými að þegar ég sat í bílnum mínum fann ég fyrir bassaboxunum í hinum bílunum og fékk næstum andarteppu vegna þrýstings. Ég sá samt aldrei svona marga bíla á Esso eins og voru þarna. Og unga fólkið sem var að skoða bílana, þetta voru örugglega svona 50-60 manns og svo sá ég 2 kalla með myndavélagræjur. Ég veit ekki hvort þetta er svona á hverju kvöldi eða hvert fimmtudagskvöld eða hvort þetta hafi verið eitthvað sérstakt. En við Karen litum bara á hvor að með spurningamerki í andlitinu.
Við komumst ekki einu sinni út af því að það voru svo margir að skoða bíla og felgur og eitthvað kjaftæði. Það horfðu ansi margir á elskulega Subaruinn minn og Hyundai-inn hennar Karenar, ég er alveg viss um að við höfum verið á langflottustu bílunum!
En þetta var mjög spes og ég er að hugsa um að fara í smá njósnaleiðangur einhvern tíma seinna og athuga hvort þetta hafi verið einstakt kvöld eða hvort unga fólkið safnist þarna saman með bílana sína eftir að Reykjavíkurborg ákvað að reisa Tónlistar- og Ráðstefnuhús niður við höfn þar sem hið gamla góða Essoplan var.
Inga Sif, sú sem var á flottasta bílnum í gær ;)

fimmtudagur, 18. október 2007
Af hverju?
Hví er það svo að framleiddar eru alltaf sömu/svipaðar bragðtegundir í drykkjum og jógúrtum/skyrum?
Það er alltaf verið að koma með eitthvað nýtt á markaðinn með örlitlum útfærslum. Tökum dæmi:
1. Jógúrt/skyr. Það eru til milljón gerðir af jógúrtum sem koma koma frá mismunandi framleiðendum en einhvern veginn tekst öllum að klína jarðarberjabragði í allt sem þeir framleiða. Það er til jarðarberja þykkmjólk, skyr, ab-mjólk, engjaþykkni, jógúrt og í öllu því sem er með Drykkjar- fyrir framan. Meira að segja eru jarðarber í jógúrti með blönduðum ávöxtum (hefði alveg mátt sleppa því þar sem svo margt annað var þegar í boði með því bragði). Og þetta er allt saman svo hryllilega væmið og sætt að það er varla hægt borða þetta.
2. Drykkir. Hér er ég samt aðallega að meina gos. Það er alltaf verið að koma með nýja gosdrykki á markaðinn og það liggur við að annar hver þeirra innihaldi sítrónu- eða límónubragð. Það er þó ekki jafn slæmt og með jarðarberjabragðið því þetta er alveg drykkjarhæft en tökum dæmi um drykki sem innihalda þetta bragð. Það er Sprite, 7up, 4 tegundir af kristal (2x venjulegur, 1x + og 1x sport), 3 toppar og svo hefur verið til pepsi twist sem var með sítrónu og nú er pepsi með límónu.
Hafa framleiðendur ekki meira hugmyndaflug en þetta? Er ekki hægt að koma með einhverja aðra ávexti? Egils tók nú af markaðnum fjólubláa kristalin sem var með sólberjabragði og kom i staðinn með kristal með sítrónu og jasmín, þvílíkt og annað eins!
Inga Sif, sú sem langar í eitthvað annað en jarðarber og sítrónur/lime

sunnudagur, 14. október 2007
Inga Sif og nýi síminn
Fór í símaleiðangur með Fanneyju systur sem nú er stödd sunnan heiða. Ég var með ákveðinn síma í huga en hún svolítið óviss. Við sáum mjög flottan síma nema hann var bronslitaður og það var ekki að gera sig. Við spurðum um fleiri liti og afgreiðslumaðurinn sagði einnig vera til bleikan. Fanney fékk vægt sjokk, bronsaður eða bleikur sími er ekki alveg hún en haldið þið að ég hafi ekki skellt mér á einn bleikan, já BLEIKAN! Hann er algjört bjútí. Ég fann bara mynd af svörtum svona síma þannig að þið verðið að ímynda ykkur hann bleikan - be open minded

Við eigum eftir að connecta betur en ég veit að með tímanum verðum við orðin bestu vinir :)
Inga Sif, sú sem er mjög ánægð með nýja bleika símann sinn :D

fimmtudagur, 11. október 2007
Bloggleysi dauðans
Næstum mánuður síðan ég bloggaði og vá maður hvað það hefur mikið gerst síðan þá.
Fór norður með Önnu Dóru systir og Dagnýju Rut dóttur hennar í heimsókn til Fanneyjar systur og Daníels Týs. Þetta var frábær ferð þrátt fyrir að geta ekki heimsótt alla sem ég ætlaði mér að heimsækja. En vonandi verður stutt í næstu ferð og þá verður kíkt í aðrar heimsóknir.
Svo byrjaði ég í nýrri vinnu um mánaðamótin hjá Tryggingamiðstöðinni. Þar er ég þjónustufulltrúi í vátrygginga- og fjármálaþjónustu fyrirtækisins og er að fíla mig svona asskoti vel þar. Fjórir einstaklingar (ég meðtalin) á aldrinum 24-33, 2 kk og 2 kvk sem hlustum að glymrandi góða músík allan daginn og vinna þar á milli he he he. Ég er ekki komin almennilega inn í þetta allt saman strax, enda miðað við 6 vikna kennslu áður en farið er að vinna almennilega við þetta. Ég er EKKI að reyna að lokka inn nýja viðskiptavini, það sjá framhaldsskóla gaurarnir um sem mæta kl. 16:30 á daginn.
En loksins er ég komin með vinnu í Reykjavík og þarf ekki að vakna fyrir allar aldir til að smala saman liði og keyra til Keflavíkur. En þá kemur annað... Inga Sif er að fara að flytja til Njarðvíkur, nánar tiltekið Innri-Njarðvík, næstu mánaðamót þannig að það verður ekki lengi sem það tekur mig 30 mín. að aka í vinnuna. En hvað gerir maður ekki fyrir góða vinnu!
Svo er ég búin að kíkja í bæinn og svona, síðasta laugardag var afmæli hjá Önnu Rós og var dagurinn tekinn snemma í Mecca Spa, svo farið heim til hennar og borðað dýrindis mat og um kvöldið kom svo spákona um kvöldið. Ég ætla ekki að segja hvað hún sagði um/við mig í smáatriðum en segi bara að ég er bara ánægð og sátt við það sem hún sagði (ef það rætist).
Svo er það auðvitað pólitíkin........... HVER VILL D.B.E. SEM BORGARSTJÓRA??? Er fólk alveg búið að missa vitið??? Ég er svo gáttuð, get ekki tjáð mig meira um þetta mál en ég get sagt ykkur það að ég kom víst upp í hugann hjá nokkrum þegar þetta var tilkynnt þar sem hann Dagur er svarinn óvinur minn.
Jæja, búin að pústa. Allir ánægðir með bloggið mitt?
Inga Sif, sú sem hefur ekki bloggað lengi

miðvikudagur, 19. september 2007
Oh, what a beautiful mornin´...
Oh, what a beautiful day.
I got a beautiful feelin'
Everything's goin' my way
Inga Sif, sú sem fékk nýja vinnu í dag JIBBÍÍÍÍ

mánudagur, 17. september 2007
Komin heim í kuldann á klakanum
Já ferðin er því miður búin. Kom heim í fyrrinótt og þá var hitinn hér á landi ein gráða. Þessa tölu hef ég nú ekki bara séð í hálft ár eða svo. Úti var ég vön svona 32-36 stiga hita yfir daginn og á kvöldin var oftast 25-26 gráður.
En ferðasagan í stuttu máli:
Komið út um miðnætti svo þegar við fórum á barina "okkar" voru tveir þeirra lokaðir svo við kíktum á einn stað. Svo var sólbað í ég veit ekki hvað marga klukkutíma þegar ég tel saman yfir alla ferðina. En svo fór ég í þrjár ferðir; fyrst til eyjarinnar Santorini - LOVING IT - en allir Skala vinirnir fóru þangað saman. Það var ógeðslega vont í sjóinn á leiðinni til baka til Krítar og við þurftum að þola æluhljóð og lykt því fylgjandi. En við komumst heil til baka og skemmtum okkur mjög vel yfir þessu öllu saman. Svo skoðuðum við Bryndís Perlur Krítar ásamt bökurunum fjórum. Þetta var ferð þar sem skoðaður var hluti af eyjunni til dæmis gamall kastali, virki og munkaklaustur. Svo dýfðum við tánum ofan í Lýbíuhafið sem er á suðurhluta eyjarinnar og keyrðum um geggjað bratta og mjóa fjallvegi og nutum dagsins í botn. Síðasta ferðin var í Samaria gljúfrið með Bryndísi. Við löbbuðum samt ekki niður allt gljúfrið, fórum bara upp á móti hópnum. Þetta tók heilan dag og tók alveg ágætlega á.
Leigðum bíl í tvo daga og Bryndís keyrði alveg eins og Krítverjar gera - CRAZYNESS - Fórum í Gokart og vatnsrennibrautagarð, við Bryndís fengum okkur tattoo og allir versluðu sér eitthvað. Svo var það auðvitað djamm djamm djamm en samt ekki jafn mikið og síðast. Hittum fullt af skemmtilegu fólki og eyddum fullt af tíma á börum bæjarins. Þetta var frábær ferð í alla staði. Sé ekki eftir því að hafa þurft að bíða í 8 mánuði frá því við keyptum ferðina og þangað til við fórum. Loving it!
En nú tekur hið daglega líf aftur við með enga sól en fullt af rigningu, kannski smá snjó.
Inga Sif, sú sem var í himnaríki í tvær vikur

Subscribe to:
Posts (Atom)