Ég þoli ekki fólk sem situr á Bókhlöðunni, hóstar og snýtir sér alveg eins og það trufli ekki hina.
Þess vegna fór ég snemma heim í dag - vildi ekki verða one of those :)
Inga Sif, sú sem hóstar og hóstar
miðvikudagur, 31. janúar 2007
Leið :(
Ég er alveg óhemju leið í dag.
Ég var alveg viss um að við ynnum Baunverjana í leiknum í gær en því miður rættist ekki óskin mín.
Einnig sit ég á Bókhlöðunni ein því Dagný Ósk Hlöðufélagi er í vinnunni.
Ég næ ekki að komast mikið áfram í ritgerðinni minni, er eitthvað svo lost.
Inga Sif, sú sem er leið

þriðjudagur, 30. janúar 2007
Nýja árið hefur liðið ansi fljótt. Á morgun rennur upp besti mánuður ársins og það styttist óðum í afmælið mitt :) Ég er nú langt í frá því að vera sú eina sem á afmæli í þessum mánuði því svo virðist sem flestir sem ég þekki eigi afmæli á tímabilinu jan-mars. Á þessu sama tímabili er ekki gott að gifta sig samkvæmt niðurstöðum könnunar sem ég las. Þær niðurstöður sem fengust sýndu að algengast er að þau hjónabönd sem fara fram í þessum mánuðum endi með skilnaði.

Skólinn gengur ekki vel, ég er frekar löt og þarf að fara að fá spark í rassinn. En svo er líka HM alveg að verða búið og þá verður fókusað betur á lærdómin. En þetta er síðasta önnin í bili þannig að ég get ekki kvartað mikið.
Inga Sif, sú sem fer alveg að telja niður dagana í útskrift.
En ég pantaði mér ferð til útlanda fyrir helgi ásamt þremur öðrum megabeibum. Ferðinni er heitið til Krítar þann 1. sept í tvær vikur! ÉG GET EKKI BEÐIÐ. Við verðum á hóteli sem heitir Skala, lítið sætt hótel sem ég hef verið á tvisvar sinnum áður. Það eru bara átta herbergi þannig að ef þið viljið koma með verðið þið að fara að panta a.s.a.p. :) Ég ætla að deila með ykkur smá minningum þaðan

Skólinn gengur ekki vel, ég er frekar löt og þarf að fara að fá spark í rassinn. En svo er líka HM alveg að verða búið og þá verður fókusað betur á lærdómin. En þetta er síðasta önnin í bili þannig að ég get ekki kvartað mikið.
Inga Sif, sú sem fer alveg að telja niður dagana í útskrift.
fimmtudagur, 25. janúar 2007
Hvar er annar gírinn???
Ég er núna búin að sitja á Bókhlöðunni í rúma 2 tíma. Ekki hefur allur sá tími farið í lærdóm og hugurinn er ekki alveg við efnið. Ég var til dæmis áðan að bóka ferð til Krítar með þremur öðrum ofurskutlum og hef aðeins verið með hugann þar.
Bækurnar liggja enn í pokanum síðan ég kom hingað en ég er þó búin að finna nokkrar greinar á netinu sem ég get notað. Þetta fer lötur hægt af stað og ég verð að fara að spýta í lófana og skipta yfir í fimmta gírinn.
Ef einhver þarna úti kann gott ráð við -að komast ekki í gang- vandræðum, lett mí nó plís.
Leikur í kvöld, við erum þau einu í okkar riðli sem erum komin með 4 stig. ÁFRAM ÍSLAND!
Inga Sif, sú sem finnur ekki annan gírinn í lærdómi, bara í handboltanum :þ

þriðjudagur, 23. janúar 2007
Smá pása
Hjartað mitt hefur fengið að vera rólegt í dag... enginn handbolti. Leikurinn í gær var tær snilld og andrúmsloftið á heimilinu í samræmi við spennuna í leiknum. Greyið Daníel Týr litli var að leika sér á gólfinu þegar amman, afinn og frænkan öskruðu og öskruðu. Það eina sem kom upp úr honum var: "æi, ekki öskva sona!" - snúllinn :)
En það var líka smá pása frá lærdómi í dag (ekki það að ég sé búin að vera neitt dugleg). Ég fór að vinna svo ég geti nú lifað á einhverju öðru en loftinu í stóra afmælismánuðinum febrúar, fullt af afmælum og hátíðum framundan. Gleymdi í gær að setja hér inn að minn eini bróðir varð 25 ára. Til lukku með það! Hann fær enga mynd af sér hér inn því ég skrifa þetta úr fornaldartölvu föður míns. Mín tölva er hos min söster því hennar tölva hrundi og hún þurfti að taka próf. Ég sakna Fjólu alveg svakalega og veit ekkert hvað ég á að gera í frítíma mínum.(For the record - Fjóla er tölvan mín).
Ég held að nóg sé komið í dag. Búin að vaka síðan 5:15 og þarf að vakna 6:15, fara í gymmið og mæta á Hlöðuna í hópaverkefni kl. 9. Fyrir þann tíma ætla ég að sækja Fjólu til Fanneyjar, get ekki verið lengur án hennar.
Inga Sif, sú sem á tölvu fyrir afkvæmi!
e.s. ég veit að það eru einhverjir þarna úti sem skilja samband mitt og Fjólu :)

laugardagur, 20. janúar 2007
Hitinn í kuldanum
"Það er allt að verða klárt hér" segir Geir sem er að byrja að lýsa leiknum Ísland - Ástralía. Spennandi leikur framundan þó svo að ég búist nú ekki við öðru en að við vinnum þennan leik. Helga Hrönn mín kæra vinkona sagði mér áðan að ég ætti ekki að vera nálægt foreldrum mínum á meðan leiknum stendur því þau gætu fengið hjartaáfall. Til að fræða ykkur sem þekkið mig ekki sem svakalegan handbolta aðdáenda þá segi ég bara að það sé kannski gott fyrir ykkur, eða réttara sagt hjartað ykkar að vera ekki nálægt mér þegar ég horfi á þessa íþrótt :)
Þegar þessum leik er lokið verður mér örugglega ekki eins kalt og mér er búið að vera undanfarna daga. Þetta kuldakast er ekki gott en þá er gott að hafa svona adrenalín kick til að horfa á. Ekki er það verra að hafa einn sætasta piparsvein landsins í landsliðinu. Skelli einni mynd af honum fyrir ykkur... svona ef þið eruð ekki viss á því um hvern ég er að tala.

Tólf mínútur búnar af leiknum og staðan er 11-2 fyrir okkur. Áfram Ísland!
Inga Sif, sú sem heldur sér heitri í kuldanum með handboltaáhorfi
mánudagur, 15. janúar 2007
Pirr pirr pirr
Eitt er það sem virkilega böggar mig... þegar kennarar mæta ekki í tímana og láta ekki vita. Það gerðist í dag, fyrsta skóladaginn. Bögg.is. Eini tíminn sem ég á að mæta í skólann og ég fer vestur í bæ til einskis. Ég ætla ekki einu sinni að fara út í allt bílavesenið sem ég þurfti að lifa við í dag! Svo ætlaði ég að reyna að koma á smá fundi með verðandi leiðbeinendum mínum í lokaverkefninu mínu en annar þeirra komst ekki þannig að við þurftum að fresta því til morguns. Þetta þýðir að ég get ekki mætt í vinnuna tvo daga í þessari viku út af skóla. En ég nenni ekki meiri pirringi, verum glöð.
Annað sem mig langar að segja ykkur frá í sambandi við daginn í dag er að nú eru sjö ár síðan ég átti að verða Reykvíkingur. Á þessum tíma árið 2000 var ég búin að vera að borða pizzu á eldhúsgólfinu á Hagaflötinni og þurfti svo að þrífa loftið inni í stofu. Við fórum með alla búslóðina í einni ferð því við höfðum flutningabíl ásamt tengivagni. Svo voru þrír eða fjórir bílar sem gátu tekið smádót. Ég man að ég sat aftur í Subaru á leiðinni upp í Grafarvoginn með tárin í augunum. Þetta fannst mér alveg ömurlegt - að þurfa að flytja úr Garðabænum. :(
Á Hagaflötinni bjó ég í næstum 11 ár og minningarnar eru óteljandi. Hér í B-21 hafa nú líka safnast saman margar minningar en Hagaflötin er The Place í mínum augum. Fólkið sem keypti húsið af okkur breytti því rosalega mikið og nú lítur það ekki út neitt líkt því og þegar ég bjó þar. Garðurinn er meira að segja allt öðruvísi, runnar farnir, aspirnar horfnar og búið að setja grasþökur í staðinn fyrir hraunsteinana. Whole other place, enda ekki okkar lengur. En það voru fullt af skemmtilegum stundum þarna og ég passa þær vel.
Inga Sif, sú sem heldur í minningarnar :)

laugardagur, 13. janúar 2007
Áfram Ísland!
Jamm, ný komin af leiknum - sveitt og ógeðsleg. Starði á Vigni en gat samt fylgst með leiknum ;) Hann fór ekkert inn á en var duglegur að naga á sér neglurnar á varamannabekknum he he.
Við fórum sex saman ég + Hrafnhildur + Guðbjörg + Bryndís + Helga Hrönn + Dóri. Bryndís veit ekki neitt um handbolta og ég eyddi ákveðnum tíma í að útskýra fyrir henni leikinn. Svo er að horfa á leikinn á morgun og sjá hvort þeir vinni ekki þann leik. Í dag töpuðu "strákarnir okkar" með tveggja marka mun (ætti ég kannski að segja landsliðið af því að þeir unnu ekki)
Svo er það ein afmæliskveðja í dag. Bylgja Dögg ofurmamma og megabeib er 24 ára í dag. Í vikunni átti hún gordjöss prinsessu og ég stal myndum af heimasíðum þeirra til að sýna ykkur skvísurnar :)

Til hamingju með afmælið og til hamingju Bylgja og Sigfús með stelpuna!
Svo í kvöld er brjáluð dagskrá. Þrítugs afmæli hjá Sævari mági og svo innflutningspartý hjá Önnu Rós. Svo held ég að það sé kominn tími til þess að heimsækja Hressó því þangað hef ég ekki komið í alllangan tíma. Ef þið viljið hitta mig þá bara mæta þangað :)
Inga Sif, sú sem styður strákana okkar

föstudagur, 12. janúar 2007
Alveg einstök uppfinning
Hvað haldið þið! Það er kominn á markaðinn hringur sem er ekki trúlofunarhringur og ekki giftingarhringur. Nei, þessi hringur er fyrir þá einstaklinga sem eru einhleypir - sem sagt hözzlhringur! Þetta er merki þess að maður er frjáls eins og fuglinn.
Nú eiga sumir eftir að gagnrýna þetta; til hvers að sýna að maður eigi ekki svokallaðan betri helming? Á móti segi ég nú bara til hvers að sýna að maður sé frátekinn? Hvernig á einhver að geta náð sér í maka ef hann/hún er alltaf í vafa hvort sá sem hann/hún hefur augastað á er á lausu eða ekki. Það er mjög sniðugt að hafa þetta "merki" sem segir "ég er single, reyndu við mig"
Þegar hefur þessi hringur verið seldur í allavega 17 löndum og eins og segir í greininni þá er þetta fræga hollívúdd lið líka farið að sýna hringana. Ég styð þetta heils hugar og vonast til þess að þetta komi sem fyrst á íslenskan markað. Þá þarf ég ekkert að vera í vafa hvort huggulegir karlmenn eru á lausu eða ekki.
Lesa má um þetta á slóðinni http://www.firebox.com/index.html?dir=firebox&action=product&pid=1438&src_t=cat&src_id=lifestyle
Inga Sif, sú sem bíður spennt eftir þessari snilldar hugmynd :)

miðvikudagur, 10. janúar 2007
Kuldaboli
Nú væri mjög gott að eiga eitt stykki föðurland. Vinnan mín býður upp á alveg hryllilega lélega, eiginlega bara enga, upphitun í þessu risastóra vöruhúsi. Ég vinn í úlpunni og með húfu allan daginn og í lopasokkunum. Eitthvað sem vantar bráðnauðsynlega er meiri hiti. Ef þið finnið hann vinsamlegast sendið hann á eftitfarandi stað:
Dreifingarmiðstöðin
Bygging 585
235 Keflavíkurflugvöllur
Inga Sif, sú sem er að krókna úr kulda í vinnunni :(

mánudagur, 8. janúar 2007
Barn er fætt í Betle... nei, Århus
Bylgja Dögg og Sigfús áttu litla prinsessu í gær. Í augnablikinu veit ég ekki meir en frekari upplýsingar koma inn seinna. Vá hvað ég er glöð fyrir þeirra hönd.
Til hamingju - Til hamingju - Til hamingju!!!
Kiss kiss og gangi ykkur svakalega vel með allt saman.
Inga Sif, sú sem er mjög stolt skáfrænka :D

laugardagur, 6. janúar 2007
Afmæli, Darwinismi og jólin kvödd
Bloggið byrjar á afmæliskveðjum:
- Esther nokkur á Fáksrúðsfirði er í dag 23 ára. Hún verður örugglega með svakalega veislu í kvöld ef ég þekki hana rétt. En allavega... til hamingju með daginn.
- Atli á Skaganum á líka afmæli í dag og hann er orðin 26 ára, gamli skröggurinn. Ef ég þekki hann rétt þá verður bjórinn ekki sparaður í kvöld. Til hamingju með daginn.

Annað sem ég vil nefna er svolítið sem ég las inni á mbl.is um Darwin-verðlaun. Frekar skondið svo kíkið á http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1245397. Fólk er og verður mis skrýtið. Ég hef alltaf haldið að Bandaríkjamenn væru frekar skrýtnir svo það kom mér á óvart að aðeins einn þaðan fékk þessi verðlaun.
Í dag er kominn sjötti dagur ársins og honum fylgir alltaf Hangikjötsát með öllu tilheyrandi því þetta er síðasti dagur jóla. Þá fæ ég líka laufabrauð í síðasta sinn í laaangan tíma.
Í ár missti ég alveg af jólaundirbúningnum því prófin stóðu til 21. des og svo hófst jólavinnan daginn eftir. Eina skrautið í herberginu mínu er bleika aðventustjarnan mín sem ég hef átt í fjöldamörg ár, jólatréskerti og þrjú lítil jólaálfakerti.
Næstu jól verður skreytt meira.
Lengra verður þetta ekki í dag hjá mér.
Inga Sif, sú sem kveður jólin með Hangikjöti og laufabrauði.
miðvikudagur, 3. janúar 2007
Árið 2007
Með nýju ári fylgja alltaf einhverjar breytingar, hvernig ætli árið verði hjá mér?
Ég er mikið búin að vera að spá í hvað þetta ár beri með sér og hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta ár á eftir að breyta ansi miklu. Hér eru nokkur dæmi:
1. Í febrúar verð ég 24 ára - mér finnst það hár aldur
2. Í febrúar/mars byrja ég á lokaritgerðinni minni - háskólinn er að verða búinn
3. Í júní útskrifast ég úr háskólanum - ég er að verða fullorðin
4. Í maí/júní fæ ég vonandi mína framtíðarvinnu - ég er að verða fullorðin
5. Einhvern tíma á árinu (vonandi) flyt ég að heiman - ég er að verða fullorðin
Niðurstaða: Á árinu 2007 verð ég fullorðin!
Inga Sif, sú sem er að verða fullorðin :)

mánudagur, 1. janúar 2007
Úff úff úff
Já fólkið mitt. Þetta er orðið að veruleika. Ég var víst einhvern tíma búin að lofa mér því að búa til síðu um mitt skemmtilega líf og hér er hún komin. (Þessi áramótaheit...). Til að vita meira verður lesningin að vera oftar en einu sinni því þessi fyrsta færsla er bara eins konar "Welcome to my blog" færsla.
Inga Sif, sú sem heldur að líf sitt sé spennandi ;)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)