Bloggið byrjar á afmæliskveðjum:
- Esther nokkur á Fáksrúðsfirði er í dag 23 ára. Hún verður örugglega með svakalega veislu í kvöld ef ég þekki hana rétt. En allavega... til hamingju með daginn.
- Atli á Skaganum á líka afmæli í dag og hann er orðin 26 ára, gamli skröggurinn. Ef ég þekki hann rétt þá verður bjórinn ekki sparaður í kvöld. Til hamingju með daginn.

Annað sem ég vil nefna er svolítið sem ég las inni á mbl.is um Darwin-verðlaun. Frekar skondið svo kíkið á http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1245397. Fólk er og verður mis skrýtið. Ég hef alltaf haldið að Bandaríkjamenn væru frekar skrýtnir svo það kom mér á óvart að aðeins einn þaðan fékk þessi verðlaun.
Í dag er kominn sjötti dagur ársins og honum fylgir alltaf Hangikjötsát með öllu tilheyrandi því þetta er síðasti dagur jóla. Þá fæ ég líka laufabrauð í síðasta sinn í laaangan tíma.
Í ár missti ég alveg af jólaundirbúningnum því prófin stóðu til 21. des og svo hófst jólavinnan daginn eftir. Eina skrautið í herberginu mínu er bleika aðventustjarnan mín sem ég hef átt í fjöldamörg ár, jólatréskerti og þrjú lítil jólaálfakerti.
Næstu jól verður skreytt meira.
Lengra verður þetta ekki í dag hjá mér.
Inga Sif, sú sem kveður jólin með Hangikjöti og laufabrauði.
2 ummæli:
Þakka afmæliskveðjurnar. Á einum sólarhring hélt ég 3 mismunandi afmælispartý. Geri aðrir betur!
...svo verður náttúrlega eitt í viðbót á Taco Bell næstu helgi ;)
Takk fyrir ammæliskveðjuna :)
maður er orðinn svo gamall að ég hélt ekki einu sinni ammælispartý að þessu sinni, það verður bara haldið uppá þetta seinna.
Skrifa ummæli