föstudagur, 12. janúar 2007

Alveg einstök uppfinning

Hvað haldið þið! Það er kominn á markaðinn hringur sem er ekki trúlofunarhringur og ekki giftingarhringur. Nei, þessi hringur er fyrir þá einstaklinga sem eru einhleypir - sem sagt hözzlhringur! Þetta er merki þess að maður er frjáls eins og fuglinn.
Nú eiga sumir eftir að gagnrýna þetta; til hvers að sýna að maður eigi ekki svokallaðan betri helming? Á móti segi ég nú bara til hvers að sýna að maður sé frátekinn? Hvernig á einhver að geta náð sér í maka ef hann/hún er alltaf í vafa hvort sá sem hann/hún hefur augastað á er á lausu eða ekki. Það er mjög sniðugt að hafa þetta "merki" sem segir "ég er single, reyndu við mig"
Þegar hefur þessi hringur verið seldur í allavega 17 löndum og eins og segir í greininni þá er þetta fræga hollívúdd lið líka farið að sýna hringana. Ég styð þetta heils hugar og vonast til þess að þetta komi sem fyrst á íslenskan markað. Þá þarf ég ekkert að vera í vafa hvort huggulegir karlmenn eru á lausu eða ekki.

Lesa má um þetta á slóðinni http://www.firebox.com/index.html?dir=firebox&action=product&pid=1438&src_t=cat&src_id=lifestyle

Inga Sif, sú sem bíður spennt eftir þessari snilldar hugmynd :)

Engin ummæli: