"Það er allt að verða klárt hér" segir Geir sem er að byrja að lýsa leiknum Ísland - Ástralía. Spennandi leikur framundan þó svo að ég búist nú ekki við öðru en að við vinnum þennan leik. Helga Hrönn mín kæra vinkona sagði mér áðan að ég ætti ekki að vera nálægt foreldrum mínum á meðan leiknum stendur því þau gætu fengið hjartaáfall. Til að fræða ykkur sem þekkið mig ekki sem svakalegan handbolta aðdáenda þá segi ég bara að það sé kannski gott fyrir ykkur, eða réttara sagt hjartað ykkar að vera ekki nálægt mér þegar ég horfi á þessa íþrótt :)
Þegar þessum leik er lokið verður mér örugglega ekki eins kalt og mér er búið að vera undanfarna daga. Þetta kuldakast er ekki gott en þá er gott að hafa svona adrenalín kick til að horfa á. Ekki er það verra að hafa
einn sætasta piparsvein landsins í landsliðinu. Skelli einni mynd af honum fyrir ykkur... svona ef þið eruð ekki viss á því um hvern ég er að tala.

Tólf mínútur búnar af leiknum og staðan er 11-2 fyrir okkur. Áfram Ísland!
Inga Sif, sú sem heldur sér heitri í kuldanum með handboltaáhorfi
2 ummæli:
Elskan mín, ekki bara EINN sætasti piparsveinn landsins. Það eru NOKKRIR mjög sætir piparsveinar í elsku landsliðinu okkar! :)
Esther - ég veit ekkert með hina leikmenn liðsins en þessi er frír og hefur komið í Séð og Heyrt með þennan titil á bakinu. Það eru margir mjög svo huggó á vellinum en enginn er jafn gordjöss og Vignirinn ;)
Áfram Ísland!
Skrifa ummæli