fimmtudagur, 25. janúar 2007

Hvar er annar gírinn???

Ég er núna búin að sitja á Bókhlöðunni í rúma 2 tíma. Ekki hefur allur sá tími farið í lærdóm og hugurinn er ekki alveg við efnið. Ég var til dæmis áðan að bóka ferð til Krítar með þremur öðrum ofurskutlum og hef aðeins verið með hugann þar.

Bækurnar liggja enn í pokanum síðan ég kom hingað en ég er þó búin að finna nokkrar greinar á netinu sem ég get notað. Þetta fer lötur hægt af stað og ég verð að fara að spýta í lófana og skipta yfir í fimmta gírinn.

Ef einhver þarna úti kann gott ráð við -að komast ekki í gang- vandræðum, lett mí nó plís.


Leikur í kvöld, við erum þau einu í okkar riðli sem erum komin með 4 stig. ÁFRAM ÍSLAND!


Inga Sif, sú sem finnur ekki annan gírinn í lærdómi, bara í handboltanum :þ

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja Inga á ekkert að fara að koma með eina færslu? Það er eins og einhver sé fastur í park-gírnum???
Það er mikill spenningur og eftirvænting útaf leiknum en við tökum Danina og burstum þá:D
gangi þér vel með ritgerðina!
knús frá DK
Aarhusgengið