En ég pantaði mér ferð til útlanda fyrir helgi ásamt þremur öðrum megabeibum. Ferðinni er heitið til Krítar þann 1. sept í tvær vikur! ÉG GET EKKI BEÐIÐ. Við verðum á hóteli sem heitir Skala, lítið sætt hótel sem ég hef verið á tvisvar sinnum áður. Það eru bara átta herbergi þannig að ef þið viljið koma með verðið þið að fara að panta a.s.a.p. :) Ég ætla að deila með ykkur smá minningum þaðan

Skólinn gengur ekki vel, ég er frekar löt og þarf að fara að fá spark í rassinn. En svo er líka HM alveg að verða búið og þá verður fókusað betur á lærdómin. En þetta er síðasta önnin í bili þannig að ég get ekki kvartað mikið.
Inga Sif, sú sem fer alveg að telja niður dagana í útskrift.

2 ummæli:
Hvaða skóli segji ég bara?
Þetta er sko ekki að ganga hjá okkur . . . spark spark . . . frá og með fimmtudegi verður allt tekið með trompi.
Kv.
Dagný Ósk - já, við verðum að fara að herða á. Og takk fyrir sparkið, einmitt það sem mig vantaði þar sem ég sit núna EIN á Hlöðunni :(
Skrifa ummæli