miðvikudagur, 3. janúar 2007

Árið 2007

Með nýju ári fylgja alltaf einhverjar breytingar, hvernig ætli árið verði hjá mér?
Ég er mikið búin að vera að spá í hvað þetta ár beri með sér og hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta ár á eftir að breyta ansi miklu. Hér eru nokkur dæmi:
1. Í febrúar verð ég 24 ára - mér finnst það hár aldur
2. Í febrúar/mars byrja ég á lokaritgerðinni minni - háskólinn er að verða búinn
3. Í júní útskrifast ég úr háskólanum - ég er að verða fullorðin
4. Í maí/júní fæ ég vonandi mína framtíðarvinnu - ég er að verða fullorðin
5. Einhvern tíma á árinu (vonandi) flyt ég að heiman - ég er að verða fullorðin

Niðurstaða: Á árinu 2007 verð ég fullorðin!


Inga Sif, sú sem er að verða fullorðin :)

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já-há....árið 2007 byrjar vel, Inga komin í bloggið:D Til hamingju með þessa síðu:D það verður sko gaman að fylgjast með þér hér og vertu nú dugleg að blogga um lífið og tilveruna:)
Knús og kossar frá DK
Bylgja Dögg

Esther sagði...

Yeah! Ég vissi að þú myndir mæta fyrr eða síðar. Líst óhemjuvel á þetta og mun fylgjast spennt með.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með bloggið eskan!:)
það getur vel verið að Inga Sif sé að verða fullorðin en ég held að Ingi minn verði það aldrei!!:)
Kv. Sigga Hulda

Litla Flísin sagði...

Bylgja Dögg - ég skal reyna að bregðast þér ekki. Ég verð nú að upplýsa þig um lífið á Klakanum. :)

Esther - á ekki alltaf að reyna að standa við áramótaheitin sín. Ég veit ekki hversu lengi þetta verður en þú getur ekki sagt að ég hafi ekki byrjað.

Sigga Hulda - það er rétt Sigga mín. Ingi eldist ekki, er það ekki það sama með Sigga? Þeir breytast ekki, ennþá bjórþambarar á fimmtudagskvöldum í þvottahúsinu... í minningunni :D

Nafnlaus sagði...

Shit hvað þú ert að verða gömul, held að þú ættir bara að reyna að kaupa þér íbúð í einhverri gamlingja blokk. Ég verð allavega ekki 24 ára fyrr en í mars muhahahaha.

Nafnlaus sagði...

Til lukku stelpa!
Það fer að styttast í endurfundina :)
Kv. Dagný Ósk