Hjartað mitt hefur fengið að vera rólegt í dag... enginn handbolti. Leikurinn í gær var tær snilld og andrúmsloftið á heimilinu í samræmi við spennuna í leiknum. Greyið Daníel Týr litli var að leika sér á gólfinu þegar amman, afinn og frænkan öskruðu og öskruðu. Það eina sem kom upp úr honum var: "æi, ekki öskva sona!" - snúllinn :)
En það var líka smá pása frá lærdómi í dag (ekki það að ég sé búin að vera neitt dugleg). Ég fór að vinna svo ég geti nú lifað á einhverju öðru en loftinu í stóra afmælismánuðinum febrúar, fullt af afmælum og hátíðum framundan. Gleymdi í gær að setja hér inn að minn eini bróðir varð 25 ára. Til lukku með það! Hann fær enga mynd af sér hér inn því ég skrifa þetta úr fornaldartölvu föður míns. Mín tölva er hos min söster því hennar tölva hrundi og hún þurfti að taka próf. Ég sakna Fjólu alveg svakalega og veit ekkert hvað ég á að gera í frítíma mínum.(For the record - Fjóla er tölvan mín).
Ég held að nóg sé komið í dag. Búin að vaka síðan 5:15 og þarf að vakna 6:15, fara í gymmið og mæta á Hlöðuna í hópaverkefni kl. 9. Fyrir þann tíma ætla ég að sækja Fjólu til Fanneyjar, get ekki verið lengur án hennar.
Inga Sif, sú sem á tölvu fyrir afkvæmi!
e.s. ég veit að það eru einhverjir þarna úti sem skilja samband mitt og Fjólu :)
þriðjudagur, 23. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég var farin að hafa áhyggjur af þér Inga mín, hélt kannski að þú hefir fengið hjartastopp yfir handboltanum á sunnudag en sé að þú ert í fullu fjöri:) Áfram Ísland!
Bylgja - já, það munaði minnstu að svo færi. Eða leggjast í þunglyndi. En svo rann upp mánudagurinn bjartur og fagur og strákarnir MÍNIR mörðu Frakkana. :)
Skrifa ummæli