... eftir því að klára þetta hópaverkefni. Góður og skemmtilegur hópur en verkefnið er frekar erfitt þar sem að við fáum ekki alveg nægar upplýsingar um gögnin sem við erum að vinna með.
... eftir því að ljúka við B.A. ritgerðina. Búin með örlítið brotabrot af henni og fullt eftir ennþá. Skiladagur á drögum hennar er í lok apríl og svo fæ ég hana aftur í hendurnar og get bætt hana.
... eftir 1. júní því þá koma ný lög um reykingar á skemmtistöðum. Ég var alvega að kafna þegar ég var á leiðinni heim í morgun eftir heljarinnar afmælisdjamm í Austurstræti 20. Þvílík stybba, oj! Kjóllinn minn fékk góða viðrun úti á svölum.
... eftir því að útskrifast. Útskrift er 16. júní og eftir það veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér. Ef einhver hefur skemmtilega og góða vinnu fyrir mig - endilega hafið samband.
... eftir því að fara til Krítar. Ég þarf nú að bíða ansi lengi þar sem að við förum ekki fyrr en 1. sept. og það er ennþá febrúar. En það sem búið er af árinu hefur liðið ansi hratt þannig að ég býst við því að ég verði komin út áður en ég veit af.
Inga Sif, sú sem getur ekki beðið ;)
sunnudagur, 25. febrúar 2007
föstudagur, 23. febrúar 2007
Ég hef fengið nóg!
Síðustu daga hefur verið mikil umfjöllun í fréttum um þessa blessuðu ráðstefnu um netklámframleiðslu sem halda átti 7-11. mars á Hótel Sögu/Radison SAS. Á bloggsíðum landsins hefur mikið verið rætt um þetta og þar var meðal annars spurt hvað Stígamótakonum finndist um málið og hvar allir femínistarnir væru. Allir fóru að pukra um þetta, hvað þetta væri nú slæmt og setti svartan blett á okkar fallega hreina land sem er svo hryllilega pörfekt að ekkert slæmt gerist hérna (ekki það að klám sé "eitthvað slæmt").
Ég fékk alveg nóg þegar ég las það í fréttum 20. feb. að borgaryfirvöld væru farin að blanda sér inn í þetta og sögðu þennan hóp fólks óvelkominn í Reykjavík. Eftir þetta fór allt á fullt og Bændasamtök Íslands (eigendur R. SAS) fóru að vísa frá gestum sem hafði bókað gistingu hjá þeim þessa umræddu daga ef þeir gátu tengt það við netklámframleiðsluráðstefnuna. Piff!
Það sauð algjörlega upp úr hjá mér í gær þegar alveg var hætt við þessa ráðstefnu. Ég var svo fjúríus af því að þetta er svo fáránlega hallærislega glatað að loka á eitthvað svona. Það er ekkert verið að fremja lögbrot með því að halda þetta hér á landi því að netið hér á landi er fullt af klámi og klámefni selt í sérverslunum, bókabúðum, í íslenskum sjónvarpspökkum og ég veit ekki hvar og hvar...
Svo leyfa þessi "sniðugu" borgaryfirvöld að hafa klámbúllur í borginni, alla daga, öll kvöld en vilja svo banna fólki að tala um framleiðslu klámefnis í nokkra daga! Ég held að það þurfi eitthvað að fara að gera við þessi yfirvöld. Lítið ykkur nær bjánar! Ég skammast mín ekkert þó ég segi bjánar á netinu. Þetta eru svo léleg rök - engin rök að ég það liggur við að ég fari á næsta fund niður í borgarráð og bendi á þau og hlægi. Vitleysan er svo mikil.
Mér finnst líka fáránlegt að Saga láti sér detta í hug að láta undan þrýstingi "hins almenna borgara" og hætta við ráðstefnuna. Þessi almenni borgari er bara biturt, leiðinlegt fólk sem finnur öll tilefni til þess að mótmæla. Ég þoli ekki svona lið og vil ekki vera undir þessum almenna borgara hatti. NEI TAKK! Svo kom einhver kjella hjá Sögu fram í fréttum í gær og segir að þau verði að bjóða upp á klámefni á hótelinu því þau eru í alþjóðlegri hótelkeðju. Hvaða andsk... vitleysa er þetta. Ég snýst bara í hringi hérna.
En ok, það er frekar bjánalegt af þeim sem standa fyrir Snowgathering 2007 að segja að fólk hafi meiri áhyggjur af fullorðnum konum sem fækka konum sjálfviljugar en hvalveiðum. Þar fengu þau líka á sig slæma mynd. En kannski eru þau líka þessi almenni borgari sem vill mótmæla hverju sem er.
Nú spyr ég: Finnst ykkur að það sé hægt að banna þessa ráðstefnu hér á landi?
Ekki það að ég sé klámfan nr. 1 en ég sé ekki að hægt sé að banna þetta því þetta fari fyrir brjóstið á einhverjum hluta af þjóðinni. Ég fékk nóg af klámumræðu í skólanum í áfanga sem heitir Áhrif kláms og ofbeldis í myndmiðlum en ekki fer ég niður á Austurvöll og mótmæli því að einhverjir útlendingar komi hingað til lands að tala um klám inni í einhverjum sal.
Skandall, skandall, skandall!
Inga Sif, sú sem er alveg fjúríus!

fimmtudagur, 22. febrúar 2007
Vonda stelpan
Ein af mínum bestu vinkonum er svaka sár út í mig þessa dagana, réttara sagt síðustu átta daga. Ástæðan er sú að hún átti afmæli 14. feb og ég kom ekki með neina afmæliskveðju hérna inn á bloggið. Hún á allan rétt á því að vera sár en lofaði því að hætta því ef ég setti inn mynd af henni hér og óskaði henni til hamingju með daginn um daginn. Svo hér kemur það:

Elsku besta Hrafnhildur, innilega til hamingju með 24 ára afmælið um daginn. Vona að þú gerir þér grein fyrir því að þú sért sú elsta í gæruhópnum... en ég er rétt á eftir þér!
Betra er seint en aldrei ha! Vá hvað við vorum flottar þarna á Akureyrinni í fyrra. Ég sé það HrabbyLabby að þú verður að vera duglegri að koma með á djammið hér sunnan heiða líka.
Við tökum bara nokkrar myndasyrpur af okkur um helgina til að bæta í safnið. Frábær helgi framundan!
Kiss kiss
En ég er sem sagt búin að leiðrétta þetta. Og svo það komi fram þá gleymdi ég EKKI að óska henni til hamingju með daginn face-to-face, bara á blogginu :)
Inga Sif, sú sem er nú laus undan öllum ásökunum ;)
þriðjudagur, 20. febrúar 2007
sunnudagur, 18. febrúar 2007
Söngvakeppnin og súr matur
Það er nú ljóst að Mr. Haukson fari til Helsinki að þenja raddböndin fyrir okkur Íslendinga í Eurovision. Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það. Var búin að ákveða að Friðrik Ómar ætti að vinna en annars þá hef ég ekki verið að fylgjast með á fullu. En ég segi bara Good Luck til Eiríks og ætla að lána honum orðin Áfram Ísland!
Annars horfði ég ekki á keppnina því ég ákvað að eyða kvöldinu með ættinni minni á árlegu þorrablóti Syðra-Garðshorns ættarinnar. Sat að borða hákarl og brennivín ásamt smá af súrum mat, hangikjöti og pottrétti. Frábært kvöld sem endaði á Hressó með nokkrum skvísum. Fengum mikla athygli frá báðum kynjum því við vorum með siljurlituð horn á hausnum. En kvöldið var skemmtilegt, þrátt fyrir mikla þreytu og hor í hægri nösinni.
Inga Sif, sú sem er súr

þriðjudagur, 13. febrúar 2007
Lítil stelpa...stór bíll
Ég komst að því áðan þegar ég var keyra heim úr vinnunni að Renault Traffic er ekki gerður fyrir litlar manneskjur. Ég náði varla að sjá yfir stýrið - svona án gríns - því það er svo gríðarlega hátt og húddið svo stutt og lágt að ég vissi aldrei hversu nálægt bílnum ég mátti fara.
Sem betur fer þurfti ég ekki að keyra alla leið úr Keflavíkinni bara Árbær - Grafarvogur.
Inga Sif, sú sem er lítil :(

föstudagur, 9. febrúar 2007
Röskva + fallega fólkið í framboði
Það er alltaf gaman þegar að þeir sem þú heldur með vinna. Því miður gerðist það ekkert allt of oft á HM en hér í HÍ gerðist það í gær að Röskva náði 5 einstaklingum inn í Stúdentaráð en Vaka bara 4. Ég varð mjög glöð :)
En annað sem gladdi mig líka var listinn yfir fallega fólkið í kosningunum. Ég er stolt af því að þekkja svona fallegt fólk, eins og þann sem vermir 4. sætið hjá strákunum og ofurskvísuna í 1. sæti stelpumegin. En ég tók auðvitað ekki þátt í kosningunum, annars hefði röðin orðið önnur :)
Inga Sif, sú sem þekkir fallega fólkið

fimmtudagur, 8. febrúar 2007
Hárprýði
Ji minn eini. Ég gat ekki annað en tekið upp tölvuna og hripað niður á bloggið mitt eftir að hafa séð frétt áðan á RÚV um verðbólgu. Fréttin sjálf vakti ekki athygli hjá mér heldur sjálfur Seðlabankastjórinn Dabbi kóngur. Þið verðið bara að fyrirgefa en er honum alveg sama um útlit sitt? Hárið á honum var þvílíkt reytt og úfið og hann var allur frekar lufsulegur.
Á Alþingi eru menn skyldugir til þess að vera með bindi (þó svo að sumir hafi verið með uppreisn) og konur þurfa að vera fínar í tauinu. En svo virðist sem Davíð hafi þurrkað allt svoleiðis út þegar hann gekk út úr þingsal. Greyið er orðinn eitthvað svo gamall að sjá og kannski hafi hann misst stílistana sína þegar hann missti sæti sitt á þingi.
Ein lítil afmæliskveðja í lokin, Lilja Rut á afmæli í dag og er hún orðin 22 ára skvís. Til hamingju með daginn snúlla! Því miður fann ég enga mynd af skvísunni þannig að þið verðið bara ímynda ykkur hvernig hún lítur út he he.

Inga Sif, sú sem hefur áhyggjur af hárlokkum Dabba
laugardagur, 3. febrúar 2007
Peningur + útsala = eyðsla
Fínt að hafa útsölulok svona í upphafi mánaðarins þegar ég er búin að fá útborgað. Þá er hægt að eyða laununum viturlega. Þess vegna ætla ég að kíkja í Kringluna og kannski ofurtyppið eftir leikinn. Vona bara að ég finni eitthvað fínt og flott.
Inga Sif, sú sem vill eyða laununum í mollonum :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)