... eftir því að klára þetta hópaverkefni. Góður og skemmtilegur hópur en verkefnið er frekar erfitt þar sem að við fáum ekki alveg nægar upplýsingar um gögnin sem við erum að vinna með.
... eftir því að ljúka við B.A. ritgerðina. Búin með örlítið brotabrot af henni og fullt eftir ennþá. Skiladagur á drögum hennar er í lok apríl og svo fæ ég hana aftur í hendurnar og get bætt hana.
... eftir 1. júní því þá koma ný lög um reykingar á skemmtistöðum. Ég var alvega að kafna þegar ég var á leiðinni heim í morgun eftir heljarinnar afmælisdjamm í Austurstræti 20. Þvílík stybba, oj! Kjóllinn minn fékk góða viðrun úti á svölum.
... eftir því að útskrifast. Útskrift er 16. júní og eftir það veit ég ekkert hvað ég á að gera af mér. Ef einhver hefur skemmtilega og góða vinnu fyrir mig - endilega hafið samband.
... eftir því að fara til Krítar. Ég þarf nú að bíða ansi lengi þar sem að við förum ekki fyrr en 1. sept. og það er ennþá febrúar. En það sem búið er af árinu hefur liðið ansi hratt þannig að ég býst við því að ég verði komin út áður en ég veit af.
Inga Sif, sú sem getur ekki beðið ;)
sunnudagur, 25. febrúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ sætasta!
Hvernig var afmælisdagurinn??
Verð að fara að kíkja í heimsókn áður en ég fæ alvarleg fráhvarfseinkenni!!!
Kv. Siggi litli
Siggi - svona er þetta að fara norður í land þegar ég á afmæli :) en þú ert nú ekki enn flutt norður þannig að það eru bara 43 km á milli okkar. Við hljótum að fara að hittast.
Skrifa ummæli