föstudagur, 23. febrúar 2007

Ég hef fengið nóg!

Síðustu daga hefur verið mikil umfjöllun í fréttum um þessa blessuðu ráðstefnu um netklámframleiðslu sem halda átti 7-11. mars á Hótel Sögu/Radison SAS. Á bloggsíðum landsins hefur mikið verið rætt um þetta og þar var meðal annars spurt hvað Stígamótakonum finndist um málið og hvar allir femínistarnir væru. Allir fóru að pukra um þetta, hvað þetta væri nú slæmt og setti svartan blett á okkar fallega hreina land sem er svo hryllilega pörfekt að ekkert slæmt gerist hérna (ekki það að klám sé "eitthvað slæmt").

Ég fékk alveg nóg þegar ég las það í fréttum 20. feb. að borgaryfirvöld væru farin að blanda sér inn í þetta og sögðu þennan hóp fólks óvelkominn í Reykjavík. Eftir þetta fór allt á fullt og Bændasamtök Íslands (eigendur R. SAS) fóru að vísa frá gestum sem hafði bókað gistingu hjá þeim þessa umræddu daga ef þeir gátu tengt það við netklámframleiðsluráðstefnuna. Piff!

Það sauð algjörlega upp úr hjá mér í gær þegar alveg var hætt við þessa ráðstefnu. Ég var svo fjúríus af því að þetta er svo fáránlega hallærislega glatað að loka á eitthvað svona. Það er ekkert verið að fremja lögbrot með því að halda þetta hér á landi því að netið hér á landi er fullt af klámi og klámefni selt í sérverslunum, bókabúðum, í íslenskum sjónvarpspökkum og ég veit ekki hvar og hvar...

Svo leyfa þessi "sniðugu" borgaryfirvöld að hafa klámbúllur í borginni, alla daga, öll kvöld en vilja svo banna fólki að tala um framleiðslu klámefnis í nokkra daga! Ég held að það þurfi eitthvað að fara að gera við þessi yfirvöld. Lítið ykkur nær bjánar! Ég skammast mín ekkert þó ég segi bjánar á netinu. Þetta eru svo léleg rök - engin rök að ég það liggur við að ég fari á næsta fund niður í borgarráð og bendi á þau og hlægi. Vitleysan er svo mikil.

Mér finnst líka fáránlegt að Saga láti sér detta í hug að láta undan þrýstingi "hins almenna borgara" og hætta við ráðstefnuna. Þessi almenni borgari er bara biturt, leiðinlegt fólk sem finnur öll tilefni til þess að mótmæla. Ég þoli ekki svona lið og vil ekki vera undir þessum almenna borgara hatti. NEI TAKK! Svo kom einhver kjella hjá Sögu fram í fréttum í gær og segir að þau verði að bjóða upp á klámefni á hótelinu því þau eru í alþjóðlegri hótelkeðju. Hvaða andsk... vitleysa er þetta. Ég snýst bara í hringi hérna.

En ok, það er frekar bjánalegt af þeim sem standa fyrir Snowgathering 2007 að segja að fólk hafi meiri áhyggjur af fullorðnum konum sem fækka konum sjálfviljugar en hvalveiðum. Þar fengu þau líka á sig slæma mynd. En kannski eru þau líka þessi almenni borgari sem vill mótmæla hverju sem er.

Nú spyr ég: Finnst ykkur að það sé hægt að banna þessa ráðstefnu hér á landi?

Ekki það að ég sé klámfan nr. 1 en ég sé ekki að hægt sé að banna þetta því þetta fari fyrir brjóstið á einhverjum hluta af þjóðinni. Ég fékk nóg af klámumræðu í skólanum í áfanga sem heitir Áhrif kláms og ofbeldis í myndmiðlum en ekki fer ég niður á Austurvöll og mótmæli því að einhverjir útlendingar komi hingað til lands að tala um klám inni í einhverjum sal.

Skandall, skandall, skandall!


Inga Sif, sú sem er alveg fjúríus!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Veistu það Inga mín ég verð bara að vera sammála þér með þetta !! Þetta er svo ótrúlega heimskulegt að ég bara skammast mín fyrir að vera íslendingur akkúrat núna !
HHG

Litla Flísin sagði...

Helga Hrönn - einmitt, svartur blettur á þjóðina þessi hátíð... my ass. Það að hætta við klámið setur svartan blett á samfélagið

Nafnlaus sagði...

Ég meina þetta átti að vera mitt tækifæri til að reyna að koma mér inn í þennan bransa :( Ég er búin að kaupa mér nokkra mismunandi slutty nurse búninga .. þeir fá þá bara að safna ryki inni í skáp ásamt tiger strengnum og gegnsæja haldaranum mínum.....
Það var of erfitt að fara út og finna réttu aðilana en svo kemur þetta lið hingað til lands og allir á sama hótelinu .. ég hefði sko pottþétt náð einhverjum góðum samböndum þarna !! Djöfull hata ég þetta heimska fólk sem er á móti þessu !!
Þessi heimur verður bara að vera án mín í klámmyndabransanum... kannski ég reyni bara að sækja aftur um á Goldfinger.. það er nú bara asnalegt ef þeir fara að hafna manni 7 sinnum í röð....
MINN TÍMI MUN KOMA :D :D :D

Nafnlaus sagði...

Ég er alveg sammála þér en afmælis-stelpur eiga ekki að vera fjúríus!:)
Innilega til hamingju með afmælið sæta mín... leiðinlegt að geta ekki fagnað þessum áfanga með þér!
Kv. Sigga Hulda

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið Inga mín, loksins búin að ná mér..híhíhí;) Skemmtu þér mjög vel í kvöld(efast ekkert um það stuðpían mín;))
knús úr snjónum í DK

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn snúllínan mín. Skemmtum okkur svo geggjað vel í kvöld :)