Ji minn eini. Ég gat ekki annað en tekið upp tölvuna og hripað niður á bloggið mitt eftir að hafa séð frétt áðan á RÚV um verðbólgu. Fréttin sjálf vakti ekki athygli hjá mér heldur sjálfur Seðlabankastjórinn Dabbi kóngur. Þið verðið bara að fyrirgefa en er honum alveg sama um útlit sitt? Hárið á honum var þvílíkt reytt og úfið og hann var allur frekar lufsulegur.
Á Alþingi eru menn skyldugir til þess að vera með bindi (þó svo að sumir hafi verið með uppreisn) og konur þurfa að vera fínar í tauinu. En svo virðist sem Davíð hafi þurrkað allt svoleiðis út þegar hann gekk út úr þingsal. Greyið er orðinn eitthvað svo gamall að sjá og kannski hafi hann misst stílistana sína þegar hann missti sæti sitt á þingi.
Ein lítil afmæliskveðja í lokin, Lilja Rut á afmæli í dag og er hún orðin 22 ára skvís. Til hamingju með daginn snúlla! Því miður fann ég enga mynd af skvísunni þannig að þið verðið bara ímynda ykkur hvernig hún lítur út he he.

Inga Sif, sú sem hefur áhyggjur af hárlokkum Dabba
2 ummæli:
Hehe . . . ég hélt að þetta væri nú ekkert nýtt með hann Dabba kóng! Ég hef oft tekið eftir þessu með hann - meira segja meðan hann var á þinginu! Kannski er maðurinn bara haldin ofur hárvexti en einnig man ég eftir að hafa séð myndir af honum frá menntaskólaárum í sjónvarpinu og held að það hafa verið eitthvað svipað þá. En ég segji bara eitt - hann má þó hugga sig við eitt að ekki er hann með skalla eins og margir menn á hans ári. Kannski er það með þetta eins og margt annað að kannski er erfitt að finna hinn gullna meðalveg. Síðan er ábyggilega allt razy að gera í Seðlabankanum svo að hann hefur ekki haft tíma til að fara í klippingu. Kannski getur Bryndís bara farið heim til hans og klippt hann - ekki slæm hugmynd það :)
Kv.
Dagný Ósk - já ég ætti kannski að hafa samband við hárgreiðslumeistarnn og senda hana niður í Seðlabankann. Bara svona til að róa landann. (Eða er það bara ég sem hef áhyggjur?)
Skrifa ummæli