Ég komst að því áðan þegar ég var keyra heim úr vinnunni að Renault Traffic er ekki gerður fyrir litlar manneskjur. Ég náði varla að sjá yfir stýrið - svona án gríns - því það er svo gríðarlega hátt og húddið svo stutt og lágt að ég vissi aldrei hversu nálægt bílnum ég mátti fara.
Sem betur fer þurfti ég ekki að keyra alla leið úr Keflavíkinni bara Árbær - Grafarvogur.
Inga Sif, sú sem er lítil :(

6 ummæli:
lána þér kodda??? :)
Ingi er ekki lítill!:)
Kv. Siggi
Atli - ég var einmitt að spá hvort ég þyrfti upphækkun. Þá kom annað vandamál: pedalar.
Siggi - ég er ekki sú minnsta en ég er eiginlega búin að komast að því að ég er lítil og hætt að stækka :(
Þú gerir bara eins og strákurinn í Indiana Jones, bindur stóra trékubba á fæturna og segir ókídókí ;-)
eygló - jaaaááá. Af hverju fattaði ég það ekki. Púði og trékubbar, það er málið :) Takk sys
En mig langar að vita........hvað langar þig í ammæælisgjöf????
Skrifa ummæli