sunnudagur, 18. febrúar 2007

Söngvakeppnin og súr matur

Það er nú ljóst að Mr. Haukson fari til Helsinki að þenja raddböndin fyrir okkur Íslendinga í Eurovision. Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um það. Var búin að ákveða að Friðrik Ómar ætti að vinna en annars þá hef ég ekki verið að fylgjast með á fullu. En ég segi bara Good Luck til Eiríks og ætla að lána honum orðin Áfram Ísland!

Annars horfði ég ekki á keppnina því ég ákvað að eyða kvöldinu með ættinni minni á árlegu þorrablóti Syðra-Garðshorns ættarinnar. Sat að borða hákarl og brennivín ásamt smá af súrum mat, hangikjöti og pottrétti. Frábært kvöld sem endaði á Hressó með nokkrum skvísum. Fengum mikla athygli frá báðum kynjum því við vorum með siljurlituð horn á hausnum. En kvöldið var skemmtilegt, þrátt fyrir mikla þreytu og hor í hægri nösinni.


Inga Sif, sú sem er súr

Engin ummæli: