fimmtudagur, 22. febrúar 2007

Vonda stelpan

Ein af mínum bestu vinkonum er svaka sár út í mig þessa dagana, réttara sagt síðustu átta daga. Ástæðan er sú að hún átti afmæli 14. feb og ég kom ekki með neina afmæliskveðju hérna inn á bloggið. Hún á allan rétt á því að vera sár en lofaði því að hætta því ef ég setti inn mynd af henni hér og óskaði henni til hamingju með daginn um daginn. Svo hér kemur það:


Elsku besta Hrafnhildur, innilega til hamingju með 24 ára afmælið um daginn. Vona að þú gerir þér grein fyrir því að þú sért sú elsta í gæruhópnum... en ég er rétt á eftir þér!




Betra er seint en aldrei ha! Vá hvað við vorum flottar þarna á Akureyrinni í fyrra. Ég sé það HrabbyLabby að þú verður að vera duglegri að koma með á djammið hér sunnan heiða líka.
Við tökum bara nokkrar myndasyrpur af okkur um helgina til að bæta í safnið. Frábær helgi framundan!
Kiss kiss


En ég er sem sagt búin að leiðrétta þetta. Og svo það komi fram þá gleymdi ég EKKI að óska henni til hamingju með daginn face-to-face, bara á blogginu :)

Inga Sif, sú sem er nú laus undan öllum ásökunum ;)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn um daginn Hrafnhildur mín:)

knús frá DK

Nafnlaus sagði...

Jei jei takk fyrir kveðjuna. Þér er hér með fyrirgefið.
Hlakka geggjað mikið til laugardagsins og já ég verð víst að setja mig í djammgírinn :)