Elsku besta Hrafnhildur, innilega til hamingju með 24 ára afmælið um daginn. Vona að þú gerir þér grein fyrir því að þú sért sú elsta í gæruhópnum... en ég er rétt á eftir þér!
Betra er seint en aldrei ha! Vá hvað við vorum flottar þarna á Akureyrinni í fyrra. Ég sé það HrabbyLabby að þú verður að vera duglegri að koma með á djammið hér sunnan heiða líka.
Við tökum bara nokkrar myndasyrpur af okkur um helgina til að bæta í safnið. Frábær helgi framundan!
Kiss kiss
En ég er sem sagt búin að leiðrétta þetta. Og svo það komi fram þá gleymdi ég EKKI að óska henni til hamingju með daginn face-to-face, bara á blogginu :)
Inga Sif, sú sem er nú laus undan öllum ásökunum ;)
2 ummæli:
Til hamingju með daginn um daginn Hrafnhildur mín:)
knús frá DK
Jei jei takk fyrir kveðjuna. Þér er hér með fyrirgefið.
Hlakka geggjað mikið til laugardagsins og já ég verð víst að setja mig í djammgírinn :)
Skrifa ummæli