Ég var í miðjum klíðum að horfa á House þegar að auglýsingar komu. Þá kom þessi fína auglýsing Úrvals Útsýnar um Krít og ÞVÍLÍKT BULLSHIT. Myndirnar sem eru sýndar eru frá Santorini en ekki Krít og þar er sko bigg different. Ok, ok, það er hægt að fara frá Krít til Santorini en að auglýsa ferð til einnar eyju og sýna myndir af annarri... svona svipað eins og að auglýsa ferð til Grímseyjar en hafa myndir frá Vestmannaeyjum. Ég skal sýna ykkur dæmi:

Þessi mynd er tekin á Krít, nánar tiltekið er þetta feneyska höfnin í Chania sem er sá staður sem flestir fara til þegar ferðast er til Krítar.

Þessi mynd er tekin í þorpi á vesturströnd Santorini og þangað er farið með ÚÚ ef 5 klst. ferjan er tekin.
Þessar myndir sína ekki alveg allt saman en þeir sem hafa komið á báða staði vita að það er ansi mikill munur á þessum tveim eyjum. Ég skil ekki að ferðaskrifstofan skuli leyfa sér þetta, ætli enginn þeirra sem gera auglýsinguna hafi komið þangað og hafi bara unnið úr videomyndbandi sem tekið var í ferðinni? Æ dónt gett it!
Í auglýsingunni sjást eiginlega bara myndir af Santorini, fyrir utan gamlan mann og köfun. Það er ekki hægt að staðfesta að þetta tvennt sé tekið á Krít en ég veit með vissu að hin myndskeiðin eru tekin á allt annari eyju en verið er að auglýsa.
Hvað segir fólkið mitt um þetta - sammála eða ósammála?
Inga Sif, sú sem þolir ekki auglýsingabrellur...arrrg
Hvað segir fólkið mitt um þetta - sammála eða ósammála?
Inga Sif, sú sem þolir ekki auglýsingabrellur...arrrg
2 ummæli:
Alveg sammála, mjög asnalegt að auglýsa Krít og sýna mynd af annarri eyju!!!! Ætli þeir hafi verið í glasi þegar var verið að búa til auglýsinguna??
kv. frá DK
Bylgja Dögg
Bara lélegt - spurning um að senda þetta á Neytendasamtökin???
FD
Skrifa ummæli