sunnudagur, 25. mars 2007

Ég er alveg ótrúleg

Það er alveg fullt af fólki sem á afmæli á þessum árstíma, þar á meðal fjórar gærur. Af þeim hef ég bloggað afmæli einnar þeirrar á réttum tíma (tek það fram að ég bloggaði ekki á mínum afmælisdegi). Á föstudaginn átti hún Guðbjörg Huld afmæli og ég gleymdi að láta almenning vita af því þó svo að ég sæti við tölvuna frá 8:15-18 þennan dag. Dóninn ég!

En ég skelli þá einni mynd inn af henni núna, vona að hún sé ekki vængbrotinn flugfreyjulærlingur.








Sæta pæjan á Akureyri í fyrra þegar við máluðum bæinn eldrauðan! :D



Kannski ég skelli bara annarri mynd af henni inn til að bæta fyrir að gleyma henni ;)






Við partýgellurnar staddar á Ránargötunni - vá hvað það er langt síðan að við vorum þar, samt bara eins og það hafi verið í gær :)


Annars er bara allt í gúddí hér, átti mér frekar sorglegt föstudagskvöld þar sem ég sat heima að læra, lærði frá 10-18 í gær og var mætt á The Bookbarn kl. 11 í dag sunnudag og ætla að sitja hér til lokunar... sem er kl. 17.

Lífið lífinu, ekki get ég það þessa dagana

Inga Sif, sú sem lærir

Engin ummæli: