sunnudagur, 4. mars 2007

Hver er svo staðan eftir helgina?

Ég veit að fáir trúa þessu en ég djammaði bara ekki neitt þessa helgi. Það hefur ekki gerst í langan tíma og ég vona að þið haldið ekki að ég sé djammfíkill (er ég það?). En föstudagskvöldið fór bara í videokvöld með Hrafnhildi og Styrmi og svo beint heim að sofa því ég var að vinna laugardagsmorgun. Svo var mjög rólegt kvöld heima í gær þar sem ég var að spila við Dagnýju Rut litlu frænku og horfði á bíómyndir á RÚV. Svo var tekinn rúntur downtown 101 þannig að ég get ekki sagt að ég hafi haldið mig í úthverfunum alla helgina. En svo var það verkefnavinna í morgun þannig að ég varð að vera fersk fyrir flotta verkefnið :)

Núna ligg ég afvelta uppi í rúmi eftir að vera úti að borða með Krummhildi og Biddu Breezer. Ný vika er að hefjast og strax komið smá plan. Síðasta vika var fyrirfram ekkert plönuð (sem var mjög óvanalegt) og þess vegna kom mér margt á óvart.

Inga Sif, sú sem planar... svona oftast :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðast, ekkert smá góður matur. Verðum að gera þetta oftar - borða og slúðra híhíhí ;)