Já þessi för mín í Þorlákshöfn tókst ekki sem skyldi. Eftir að hafa keyrt út úr bænum og framhjá Heiðmerkurafleggjaranum kom þessi þvílíki skafrenningur að ég sá varla neitt. Sem betur fer var bíll fyrir framan mig og ég reyndi að fylgja honum og þessari einu stiku sem ég sá í einu. En þegar ég var hætt að sjá bílinn leist mér ekkert á blikuna og var að hugsa um að stoppa en Subaruinn er svo æðislegur að í sameiningu komumst við að Litlu Kaffistofunni eftir um 45 mín. akstur. Þar beið ég og dokaði ásamt fullt af öðru liði sem var á ferðinni.
Ekki það að ég hafi verið svaka vitlaus og ekkert pælt í færð á vegum, ég gerði það sko en þetta er Ísland sem við erum að tala um og veðrið versnaði bara á hálftíma.
Svo ákvað björgunarsveitin að fylgja okkur í bæinn aftur og líka yfir heiðina (þeir sem voru á leiðinni þangað). Mig langaði alveg ofsalega að halda áfram austuryfir en þá hefði bara verið spurning hvort ég hefði komist heim aftur seinna í dag.
Þannig að elsku bestasta Siggan mín, ég verð bara að koma í heimsókn seinna og þá á Akureyri. Við kannski skemmtum okkur þá jafn mikið og við gerðum á djamminu þar he he

Æ lof jú end í vill mít jú in Akureyri ðis summer.
Inga Sif, sú sem var veðurteft
4 ummæli:
Hlakka til að djamma með þér á Akureyri sæta mín!!!
Við erum flottastar:)
Kv. Siggi litli
Siggi litli - við stelpurnar förum eina gæruferð norður eins og vanalega og þá bara djammaru með okkur! Það vantar samt alveg fólkið sem var með okkur síðast en við fáum bara aðra í staðinn ;) gangi þér vel í flutningunum
Eignaðistu enga flutningabílstjóravini á Litlu kaffistofunni? Hittirðu engar trukkalessur? Ekkert skúbb?
Esther - ég verð að hryggja þig með því að ég vingaðist ekki mikið við þá. Þeir voru bara að tala um bílamál og kerruna aftan bíl eins stráksins og eitthvað, ekki mjög spennó.
Aftur á móti spjallaði ég svolítið við 3 konur sem sátu þarna líka, alveg þangað til þær fóru að ræða um saumaskap sem gekk það langt að ein þeirra hljóp út í bíl og kom aftur með efnisbút og sýndi þeim... crap!
Svo voru bara engar trukkalessur þarna, ég held að þær séu alveg að detta úr tísku, nema þær séu bara þarna á Austurlandinu hjá þér :)
Ég var bara saklaus lítil stelpa sem sat og drakk mangóte í boði kaffistofunnar. Hafði ekki einu sinni neinar bækur til þess að kíkja í meðan ég sat þarna.
Eftir að hafa skrifað þetta sé ég það að þetta var bara ekki nærrum því eins skemmtilegt og ég hélt fram, eiginlega bara hundleiðinlegt að hanga þarna.
Skrifa ummæli