Bíddu... var ég ekki í áramótapartý fyrir stuttu? Svo kom afmæli hjá Sævari, skólinn byrjaði, svo var það bústaður og útskrift, afmæli, þorrablót, afmæli, afmæli og aftur afmæli í febrúar og púff! Það er kominn mars.
Er einhver búin/nn að panta fyrir mig pláss á Kleppi? Það er svo stutt í ritgerðarskil, ég ætlaði að vera komin miklu lengra á þessum tíma (svona miðað við skipulagið mitt). En tíminn hefur sko greinilega flogið í burtu.
Inga Sif, sú sem er í tímaþröng.
fimmtudagur, 1. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli