fimmtudagur, 29. mars 2007

Skúlen skúlen skúlen

Þetta hópaverkefni er loksins alveg að verða búið júhúúú. Þetta er búið að vera ótrúlega gaman en á sama tíma alveg ótrúlega leiðinlegt. Sérstaklega þegar við föttuðum fjórum dögum fyrir skil að allt sem við vorum búnar að reikna væri bandvitlaust :s en við snillingarnir náðum auðvitað að laga það og allt er komið á réttan kjöl núna. Enda er þetta síðasti dagurinn sem við getum verið í þessu.

Á morgun er það svo sumarbústaður með Hrafnhildi og Atla þar sem við ætlum að eyða helginni í lærdóm, pottinum og örlítilli afslöppun inn á milli. Þetta verður svaka fínt þar sem ég get þá farið að einblína á B.A. verkefnið mitt... já öfundið þið mig bara! Ég á ennþá alveg fullt eftir.
Þið krúslur verðið bara heima að gera eitthvað annað spennandi.

Bylgja Dögg og Rakel Talía eru á landinu núna og við gærurnar kíktum til hennar. Þvílíka krúttið þessi stelpa og mamman stendur sig með einstakri prýði. Alveg fædd í þetta hlutverk. Sigfús kemur svo til Íslands í dag og þau ætla að vera hér fram yfir páska. Vonandi verður allavega einn hittingur í viðbót áður en þau fara af landi brott aftur.

Annars hefur síðasta vika bara verið lærdómur lærdómur lærdómur, já og eitt afmæli hjá Einínu á laugardaginn sem endaði með því að ég keyrði fjórar vel fullar stelpur niður í bæ sem höfðu einstaklega gaman af lífinu og tilverunni :D

Svo er hún Bryndís mín að fara til Flórída á morgun og ætlar að eyða næstu tveim vikum þar. Luvs luvs luvs og farðu nú varlega í sólbaðinu og shopinu.

Þangað til seinna

Inga Sif, sú sem er að fara í bústað :D

Engin ummæli: