Ég hef heyrt marga segja það að erfitt sé að ákveða nöfn fyrir börnin sín. Ekki er svo langt síðan að Bylgja Dögg þurfti að standa í því og hef ég fengið sögur af því, bara gott.
En að finna nafn á B.A. ritgerð - það ætti kannski ekki að vera mikið mál en fyrir mér er það svo. Ekki bætir úr skák að ég þarf að finna nafn á íslensku og ensku. Enska nafnið er þó komið - að hluta - en það íslenska vefst ansi mikið fyrir mér :S
Inga Sif, sú sem þarf að skíra á morgun
þriðjudagur, 24. apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Verður athöfn og kökur á morgun í tilefni skírnarinnar?? Flott ég mæti :)
P.s ég bíð mig framm sem skírnarvott
Sammála síðasta ræðumanni:) Ég sendi bara Rúnu fyrir mig....er það ekki í lagi, hún kemur með pakkann....hvað viltu að ég læt skrifa á armbandið? Ritgerð eða BS ritgerð eða bara Inga Sif?
Skemmtu þér að finna nafn á litluna þína eða kannski ætti ég að segja stóruna þína(er ritgerðin ekki margar bls) hehhe;)
knús til þín sæta mín:D
Hrafnhildur - það verður ekki mikil athöfn. En ég held ég geymi skírnina þangað til á morgun því þá á ég fund með leiðbeinendum mínum og vil að þeir hjálpi mér að velja nafnið.
En þú mátt samt alveg koma í heimsókn ;)
Bylgja Dögg - já hún er sko ekki lítil. Ég hef aldrei áður skrifað eins mörg orð í einni ritgerð og ég meira að segja skrifaði of mörg og þarf að stytta hana.
En á armbandinu á að standa duglega stelpan ;)
Við bara höldum uppá skírnina á laugardaginn með ærlegu djammi.
Hvernig líst þér á það mín kæra??
Hrafnhildur - já, þvílík snilldar hugmynd :) Sjáumst þá
Hey you guys...ég kemst ekki á laugardaginn. Er dáldið mikið busy þá.....En ætli ég haldi ekki upp á þennan merka viðburð í sumar:D
knús frá DK
Skrifa ummæli