Langar bara að segja HEPPÍ ÍSTER allir saman. Þetta páskafrí er ekkert frí hjá mér, því miður :( verð að læra en samt verður eitthvað lyft sér upp.
Í gær kíkti ég ásamt Guðbjörgu og Helgu Hrönn smá rúnt og fengum okkur ís niður í 105, rétt við mörkin á 101. Þar var einhver stórskrítinn karl (ég er ekki að reyna að vera vond, hann var stórskrítinn) og var að bölva einhverjum strákling sem var að vinna þarna. Þetta endaði með því að kallað var á lögregluna og einn stór og einn lítill bíll kom á vettvang. Við stöllurnar sátum út í bíl og fylgdumst spenntar með öllu saman, eins og litlar stelpur á ævintýramynd í bíó. Endirinn varð sá að löggumennirnir töluðu bara við manninn á meðan hann kláraði hamborgarann sinn og svo fóru þeir í burtu í sínum flotta júníform. Þetta hefði sko ekki gerst neins staðar annars staðar en þarna, þó að við vorum í 105 þá vorum við á Laugarveginum þannig að það er miðbærinn ;)
Í kvöld er planið að kíkja í allt annað sveitarfélag og fara í gegnum göng sem liggja undir sjóinn. Þar verður einhver smá samkoma, ég þarf auðvitað að læra á morgun þannig að fyllerí er ekki alveg í boði fyrir mig. En það er ekkert vandamál að skemmta sér edrú svo þetta verður örugglega gaman.
Svo hlakka ég til á sunnudaginn því þá ætla ég að eyða deginum upp í sófa fyrir framan sjónvarpið og borða Freyju-ríspáskaeggið mitt :) Ætla að sjá til hvort lærdómurinn verði nokkur þann daginn. Verð bara að vera dugleg *hóst* *hóst* í dag og á morgun svo ég geti tekið frí á sunnudaginn. Æ já, það er líka kaffiboð hjá Heimi þannig að ég verð víst eitthvað að fara út úr sófanum.
Það er ekkert nema þvílíki veislumaturinn í boði svo þetta verða dýrindisdagar. Í gær var það grillað svínakjöt með fullt af gúmmelaði, í kvöld er það steiktur skötuselur með ananas og papriku (ég fæ alveg vatn í munninn) og svo veit ég ekki með framhaldið. Ég er allavega búin að biðja um það að ekki verði boðið upp á lambakjöt :) Sjáum til hvort óskin rætist...
Inga Sif, sú sem fær páskaegg eftir tvo daga :D
föstudagur, 6. apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðilega páska :)
Skrifa ummæli