miðvikudagur, 11. apríl 2007

Skondinn s***ur

Já, hún Fanney systir er greinilega farin að hafa áhyggjur af karlmannsleysi mínu og eyðir stórum hluta vinnutíma síns vafrandi á netinu í leit að réttum dúdda (eða eitthvað svoleiðis).
Í dag sendi hún mér link á heimasíðu hjá einum sem henni finnst "matcha" við mig. Kíkið endilega á http://flisin.blogdrive.com
Svolítið skondið að sjá aðra flís hér í boggheiminum, en svona er þetta bara - ég fæ aldrei að eiga neitt ein!

Páskarnir búnir, skólinn ennþá, ég að læra og allir sáttir bara?

Inga Sif, sú sem fékk Flís

4 ummæli:

Esther sagði...

Heyrðu, kona. Þessi maður spilar á harmónikku. Go get him!

Litla Flísin sagði...

Esther - aha, totally! Og drekkur kristalplús, fílar Scrubs og hlustar á Jack Johnson. Þeir gerast varla betri. En hvað er hann að röfla um fótbolta og körfubolta... ég kem honum bara út úr þeim íþróttum og inn í handboltann ;) ÁFRAM ÍSLAND! he he he

Nafnlaus sagði...

Þú verður nú fljót að snúa honum af villu vegar góða mín. Það segir mér eitthvað að tvær flísar eiga að vera saman - ein flís er vond í putta en margar (2 + litlu babyflísarnar) eru sterkt tré.
- Ég ætti að semja málshætti fyrir Góu, þeir eru alltaf með svo stupid málshætti.

Litla Flísin sagði...

Fanney - já er það framtíðarstarfið þitt. En ég ætti kannski að byggja með honum hús úr við ;)