mánudagur, 28. maí 2007

Bara útskriftin eftir

Síðasta einkunnin kom í dag, eða réttara sagt seinni einkunnin. Litla barnið mitt færði mér 9 í skjalið og ég er mjög ánægð með það.

Var í sumarbústað um helgina með nokkrum gærum og þvílík afslöppun! Eina sem böggaði mig var að við mættum með NINTENDO tölvuna mína en gátum ekki fengið hana til að virka. Ný tækni vs. gömul tækni kannski. En annars var þetta svaka fjör.

Inga Sif, sú sem er glöð :D

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju snúllan mín, þú ert yndisleg:)
Kv. Sigga Hulda

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þetta dúllan mín:D Vissi að þú mundir standa þig með prýði í skólanum:D
Hlakka til að hitta þig eftir nokkra daga.
knús frá DK

Litla Flísin sagði...

Sigga - Takk fyrir Sigga mín. Ég er að hugsa um að kíkja norður til þín um helgina. Hvernig líst þér á það?

Bylgja - Tak så myket. Við sjáumst hressar og kátar í næstu viku.

Esther sagði...

Það er frábær árangur kona góð. Til hamingju.