Lengi hef ég beðið eftir að þessi vika renni upp, þá sérstaklega föstudagurinn. Ég er að leggja lokahönd á ritgerðina og búin að vera í fríi frá henni síðan 1. maí. Síðasta vika var vinnuvika og helgin fór að mestu í keyrslu þar sem ég "skrapp" á Egilsstaði með Heimi bróðir, Nínu og Arisi. Vá hvað það var gott að komast aðeins í burtu en ég hafði því miður ekki tíma til að kíkja upp á fjall. Geri það bara í sumar þegar við vinkonurnar tökum smá roadtrip - eða er það ekki annars ;)
Næstu dagar verða fljótir að líða og fyrr en varir verð ég komin með ritgerðina fullgerða í hendurnar. Eftir viku verð ég svo farin út á vinnumarkaðinn og verð þar lengi lengi. Það er mjög skrítin tilfinning! Vonandi fæ ég draumastarfið mitt en hvað það er hef ég ekki hugmynd um. Við hvað ætti ég eiginlega að fara að vinna, einhverjar hugmyndir?
Inga Sif, sú sem er aaaaaalveeeeeg að verða búin
mánudagur, 7. maí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Og hvað heitir barnið?
Sú sem er ekki lent eftir laugardagskvöldið
nafnlaus - ritgerðin heitir Hvar liggja mörkin? Raunveruleikaþættir og vinsældir þeirra.
Hvenær hefur þú svo hugsað þér að koma niður úr skýjunum ;)
Það verður líklega ekki fyrr en eftir sýninguna sem verður btw 7.júní í Kassa Þjóðleikhússins:-)
Sjáumst ekkert smá hressar!
Eygló
Skrifa ummæli