miðvikudagur, 27. júní 2007

Umferðin og ég

Viltu verða að minningu?
Hægðu á þér!

Þetta stendur á skiltum á brúm, það fyrra við Grafarholtið/Grafarvoginn og það seinna á brúnni við Ásahverfið í Hafnarfirði.

Þessi skilti eiga að minna fólk að það að hægja á sér og það er sko alveg þörf fyrir því. Þetta ætti að vera alltaf hér á höfðuborgarsvæðinu því fólk er farið að keyra eins og fábjánar hérna, miklu meira en áður. Ég var að keyra framhjá Mjóddinni í dag og var sko á 80 km hraða þegar aðrir bílar þeytast fram úr mér á miklu meiri hraða. Mér leið eins og gamalli kellingu sem keyrir um á 30 því það var hámarkshraðinn þegar hún fékk bílprófið. Svo þegar við vorum á leiðinni í vinnuna áðan keyrði ég á 100-110 á Reykjanesbrautinni og hugsaði aftur til gömlu konunnar þegar bílarnir skutust fram úr mér. Veit fólk ekki að það var verið að hækka hraðasektirnar?

Ég skil ekki svona og þoli ekki svona. Hægið á ykkur...fífl! (Taki þetta til sín sem eiga)

Inga Sif, sú sem fer að verða hrædd í umferðinni

sunnudagur, 17. júní 2007

JúHúúú!!!

Tvennu ber að fagna, eitt leiðinlegt...

1. Útskrift í gær: ótrúlega líður mér vel yfir því að vera búin með háskólann. Það var svaka gaman hjá mér, var ekki við athöfnina og fór svo út að borða með fjölskyldunni og hinum gærunum fjórum á Lækjarbrekku. Eftir það var svo haldið heim til mín þar sem fleiri mættu í bollu og jellyshots. Ég fékk alveg fullt af pökkum með flottu dóti. Takk æðislega fyrir mig allir saman - kyss kyss kyss og kram.

2. Ísland var að vinna Serbíu í Laugardalshöllinni. Leikurinn endaði með tveggja marka mun sem þýðir að við erum komin áfram í Evrópumeistarakeppninni. Ég var á vellinum ásamt fríðu föruneyti og það var rífandi stemning í höllinni. Gleði gleði gleði.

Það leiðinlega: Helv... andsk... djö... ekkert hefur heyrst af nýrri vinnu. Mig langar svo að losna úr Keflavíkinni; er sko alveg komin með nóg af þessu. Langar líka bara að fá vinnu sem hæfir menntun minni. Vona að það verði sem fyrst, allir að krossa fingurna!!!

Inga Sif, sú sem er glöð og leið á sama tíma

föstudagur, 8. júní 2007

Margt að gerast, ekkert að segja :Þ

Æi, búin að vera allt of löt við að hripa eitthvað niður hér. Ég er m.a.s. búin að fara norður og ekki eitt einasta orð um það komið hingað inn. Ég var þar síðustu helgi og hitti fullt af fólki, m.a. nýfæddar prinsessur. Hmm... kannski ekki hægt að segja nýfæddar þar sem önnur þeirra fæddist í júlí í fyrra og hin í október - en ég var að sjá þær í fyrsta skipti. En svo er margt framundan næstu helgar, ég er bara busy person í öðru en lærdómi :D Útskriftin er auðvitað aðalmálið og er hún eftir 8 daga. Vó hvað ég hlakka til, þó ég nenni ekki að fara niður í Laugardalshöll og hlusta á röfl í 3 klst. þá verður þetta dýrðardagur.

Inga Sif, sú sem er busy