sunnudagur, 17. júní 2007

JúHúúú!!!

Tvennu ber að fagna, eitt leiðinlegt...

1. Útskrift í gær: ótrúlega líður mér vel yfir því að vera búin með háskólann. Það var svaka gaman hjá mér, var ekki við athöfnina og fór svo út að borða með fjölskyldunni og hinum gærunum fjórum á Lækjarbrekku. Eftir það var svo haldið heim til mín þar sem fleiri mættu í bollu og jellyshots. Ég fékk alveg fullt af pökkum með flottu dóti. Takk æðislega fyrir mig allir saman - kyss kyss kyss og kram.

2. Ísland var að vinna Serbíu í Laugardalshöllinni. Leikurinn endaði með tveggja marka mun sem þýðir að við erum komin áfram í Evrópumeistarakeppninni. Ég var á vellinum ásamt fríðu föruneyti og það var rífandi stemning í höllinni. Gleði gleði gleði.

Það leiðinlega: Helv... andsk... djö... ekkert hefur heyrst af nýrri vinnu. Mig langar svo að losna úr Keflavíkinni; er sko alveg komin með nóg af þessu. Langar líka bara að fá vinnu sem hæfir menntun minni. Vona að það verði sem fyrst, allir að krossa fingurna!!!

Inga Sif, sú sem er glöð og leið á sama tíma

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég þakka bara fyrir góða helgi! Mikið gaman og mikið fjör!

Esther sagði...

Innilega til hamingju með útskriftina kona góð! Ætlaði að hringja en var alveg úrvinda eftir brjálaða vinnuviku og mundi varla hvað ég hét. Bjalla síðar til að bæta það upp ;)

Litla Flísin sagði...

Atli - já það var mikið gaman og mikið fjör hjá okkur. Takk sömuleiðis fyrir helgina.

Esther - Takk fyrir skvís. Þú klárar nú fljótlega sjálf og þá kynnistu þessari upplifun að vera útskrifuð úr háskólanum. Og svo bíð ég spennt eftir símhringingu frá þér :þ

Nafnlaus sagði...

Vildi bara minna þig á að taka frá helgina 6-8 júlí! Þið malbiks-fólkið komið í sveitina og tjúttið af ykkur rassinn! :)

Nafnlaus sagði...

Ef þú ætlar að fá vinnu sem hæfir menntuninni verður þú nú eiginlega að skipta um mynd hér á síðunni!! Ég myndi aldrei ráða þig í vinnu ef ég sæi þessa mynd af þér ;-)

Litla Flísin sagði...

eygló - hvað meinar þú eiginlega? Er ég ekki sexý þarna? Þetta er einmitt myndin sem ég setti á CV-ið mitt ;)
Ekki að ég gefi upp bloggið mitt en ég hugsaði ekki svo langt að það eru aðrir en ég sem kunna að nota google :þ