föstudagur, 8. júní 2007

Margt að gerast, ekkert að segja :Þ

Æi, búin að vera allt of löt við að hripa eitthvað niður hér. Ég er m.a.s. búin að fara norður og ekki eitt einasta orð um það komið hingað inn. Ég var þar síðustu helgi og hitti fullt af fólki, m.a. nýfæddar prinsessur. Hmm... kannski ekki hægt að segja nýfæddar þar sem önnur þeirra fæddist í júlí í fyrra og hin í október - en ég var að sjá þær í fyrsta skipti. En svo er margt framundan næstu helgar, ég er bara busy person í öðru en lærdómi :D Útskriftin er auðvitað aðalmálið og er hún eftir 8 daga. Vó hvað ég hlakka til, þó ég nenni ekki að fara niður í Laugardalshöll og hlusta á röfl í 3 klst. þá verður þetta dýrðardagur.

Inga Sif, sú sem er busy

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með útskriftina elsku sæta rúsínan mín!!!:) ég er ótrúlega stolt af þér og finnst agalegt að vera ekki hjá þér til að skála:)
Kv. Siggi litli

Litla Flísin sagði...

Sigga Hulda - takk takk. Þú hefðir sko átt að vera hérna. Ég kem bara norður fljótlega og þá skálum við fyrir mér ;) Luvs...