Viltu verða að minningu?
Hægðu á þér!
Þetta stendur á skiltum á brúm, það fyrra við Grafarholtið/Grafarvoginn og það seinna á brúnni við Ásahverfið í Hafnarfirði.
Þessi skilti eiga að minna fólk að það að hægja á sér og það er sko alveg þörf fyrir því. Þetta ætti að vera alltaf hér á höfðuborgarsvæðinu því fólk er farið að keyra eins og fábjánar hérna, miklu meira en áður. Ég var að keyra framhjá Mjóddinni í dag og var sko á 80 km hraða þegar aðrir bílar þeytast fram úr mér á miklu meiri hraða. Mér leið eins og gamalli kellingu sem keyrir um á 30 því það var hámarkshraðinn þegar hún fékk bílprófið. Svo þegar við vorum á leiðinni í vinnuna áðan keyrði ég á 100-110 á Reykjanesbrautinni og hugsaði aftur til gömlu konunnar þegar bílarnir skutust fram úr mér. Veit fólk ekki að það var verið að hækka hraðasektirnar?
Ég skil ekki svona og þoli ekki svona. Hægið á ykkur...fífl! (Taki þetta til sín sem eiga)
Inga Sif, sú sem fer að verða hrædd í umferðinni
miðvikudagur, 27. júní 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Jæja.. á ekkert að fara að blogga um nýliðna helgi og monta sig pínu :)
helgi - ég get svo sem gert það, bara fyrir þig. en þú veist hversu hógvær ég er he he he. Ég set þetta inn við tækifæri ;)
Ég held að þú sért spenntari yfir þessu en ég.
já ég viðurkenni það að minns er mjög spenntur yfir þessu öllu saman.. það er nú ekki á hverjum degi sem svona menn setjast inn í bílinn hjá manni ;) hehe
Skrifa ummæli