fimmtudagur, 26. júlí 2007

Pæling dagsins

Getur það verið að á sumrin sé maður latari á veturna vegna hitans? Samt sem áður langar mig oftast frekar út í sólina en snjóinn. En einhvern veginn kem ég mér aldrei þangað... :s

Inga Sif, sú sem situr innan dyra

miðvikudagur, 18. júlí 2007

Alveg að bresta á

Það fer alveg að koma að Krítarferðinni! Það eru 45 dagar þangað til - sem mér þykir ekki mikið þar sem við keyptum ferðina í janúar. Spennan er orðin gífurleg og ég get ekki beðið eftir að hitta fólkið mitt á Krít. Ég komst þó að því í gær að eitt parið sem við þekkjum er hætt saman þannig að stelpan (Christina) ætlar bara að reyna að hitta okkur en hún býr í Aþenu. Það er svo margt sem ég ætla að gera þarna úti og það er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt að gera, nýja staði að skoða og svona. En nóg um Krít.

Við Bryndís kíktum á Flúðir á laugardaginn þar sem eitthvað lið úr símanum var þar og Kristínu leiddist án okkar. Þar var nú aldeilis drukkið og fengu sumir símtal frá okkur um nóttina (hehe) Einn var þó frekar fúll yfir að hafa ekki verið boðið með (Atli ég lofa að segja engum að það hafi verið þú) en við bætum úr því seinna. Stefnan var tekin á útilegu um helgina en ef veðrið verður eins og spáin sýnir þá held ég að það verði ekkert úr því. En sjáum til.

Svo er það verslunarmannahelgin. Það var búið að nefna Hellishóla en ég hef ekkert meira heyrt um það. Er eitthvað í gangi, einhverjar hugmyndir... eins og Eyjar! ;)

Inga Sif, sú sem langar til Eyja

mánudagur, 9. júlí 2007

Írskir dagar hvað!

Hver þarf að fara upp á Skaga á írska daga og partý þegar maður hefur náttúruperlu eins og Þórsmörk og fullt af nýju fólki til að kynnast.

Á fimmtudaginn var mér boðið í Þórsmörk af Bryndísi því Kristín á Space þurfti að sækja kærasta sinn og vini hans þangað inn eftir. Ég þáði það boð og við Bryndís héldum af stað upp eftir um kvöldmatarleytið á föstudagskvöldinu. Við fengum far með vinnufélaga Gunnars (kærasta Kristínar) og hittum svo Kristínu á Selfossi sem hafði skroppið upp í bústað til foreldra sinna. Af þeim sem voru með okkur í Mörkinni (ekki á Mörkinni á Skaganum) þekkti ég þessar fyrrnefndu tvær skvísur, hitt var allt bláókunnugt fólk. Ekki fannst okkur Bryndísi erfitt að kynnast þessu fólki og mingluðum vel. Um nóttina hélt ég algjörlega uppi stuðinu þegar ég var að spjalla við hann Gullis en það var maður sem einnig var staddur innfrá, þó ekki með okkur í hóp. Nóttin leið og það var ekki fyrr en 7 um morguninn sem við skriðum inn í tjald, vorum bara tvær eftir fyrir framan "varðeldinn" okkar ásamt einum strák sem leist ansi vel á djammúthaldið okkar. Næstu nótt vorum það líka við þrjú sem héldum lengst út, þó ekki jafn lengi og nóttina áður.

Veðrið spillti ekki ferðinni. Þó að það hafi rignt á laugardeginum böggaði það okkur ekki mikið, sjógallinn var bara dreginn fram og málið var leist. Gærdagurinn var sko æðislegur. Sól og blíða tók á móti okkur þegar við vöknuðum og við flatmöguðum í sólinni fram eftir degi. Hitinn var um og yfir 25 gráður og við vildum varla fara heim. Svo stoppuðum við Seljalandsfoss þar sem einn skellti sér ofan í fossin!!! og vorum ekki komin í bæinn fyrr en um átta í gærkvöldi.

Ég verð nú eiginlega að segja að þessi helgi verður ofarlega í huga lengi, þó er síðasta helgi enn fersk í minni og handboltaveislan er ekki gleymd. Nú er bara að draga fólk með sér í fleiri útilegur, næstu helgi er það þó Esjan. Hvað með helgina þar á eftir pípól???

En hvað segið þið, hvernig var djammið á írsku dögunum ;)

Inga Sif, sú sem langar fljótlega aftur í útilegu

miðvikudagur, 4. júlí 2007

Ég bið að heilsa Ingu Sif

Já herrar mínir og frúr!

Ég var víst búin að lofa því að segja frá viðburðum helgarinnar svo hér kemur það:

Föstudagskvöldinu eyddi ég heima hjá mér í Super Mario Bros 3 ásamt Guðbjörgu og Bryndísi. Við sátum hér til miðnættis að reyna að rifja upp erfiðu borðin og leynibrögðin í hverju borði fyrir sig. Við hlógum og hlógum, vorum þvílíkt spenntar yfir þessu öllu saman alveg eins og í gamla daga. Ótrúlegt hvað maður man samt mikið ennþá... kannski af því að þetta var spilað daginn út og daginn inn hér áður. Þetta var alveg æðislegt, vonandi verður þetta gert aftur fljótlega.

Sama kvöld var Helga nokkur Hrönn stödd niður í miðborg Reykjavíkur ásamt Silju Rós. Þær ákváðu að væta kverkarnar "örlítið." Svo voru þær staddar á Kaffibarnum og þar hittum þær einn ákveðinn herramann nánar tiltekið Vigni Svavarsson handboltahönk. Fyrir þá sem ekki vita þá er hann línumaður og spilar með íslenska landsliðinu (þessi sæti nr.2). Helga Hrönn gaf sig á tal við hann og smellti myndum af honum. En þegar Helga var búin að tilkynna honum að ein vinkona sín sé ógó skotin þá sagðist hann biðja heilsa henni. Og ef þið vitið það ekki nú þegar þá er þessi vinkona hennar ÉG! Ég trúi því ekki enn að ég hafi ekki verið með henni, why god - WHYYYYYYY??? Sama kvöld hitti hún Fúsa (annan línumann) og Loga Geirs (skyttu/horn). Ég bara skil þetta ekki - ég sofandi og fullt af skemmtilegu liði á djamminu.

Þá þýddi ekkert annað en að skella sér í 101 kvöldið eftir og vonast eftir að rekast á þá. Við Bryndís sátum á Barðastöðum og drukkum allt vit frá okkur og fórum svo í bæinn með Helgu drivernum okkar. Við hittum Heimi bróðir of vini hans og vorum allt kvöldið á Hressó, ekki á röltinu eins og ætlunin var. Upp úr klukkan sex um morguninn vorum við stöllur svo að taka einn Laugaveg áður en heim yrði haldið og þá sjáum við hvar Logi Geirs situr á bekk í Bankastrætinu. Við fyndnu stelpurnar flautuðum á hann kölluðum eitthvað til hans og það endaði með því að hann kom að bílnum og bað um far heim ásamt vinkonu sinni. Við játtum því og úr varð klukkutíma rúntur með Loga í aftursætinu. Ég hélt að Helgan myndi hætta að anda hún var svo sjokkeruð. Við (uh eiginlega Helga) sagði honum allt um Inga Sif vs. Vignir og það endaði með því að Loginn tók niður númerið mitt og ætlar að láta Vigninn fá það (eða svo sagði hann). Þá var það ég sem fékk andarteppu og lá við að stelpurnar þyrftu að beita mouth to mouth og koma með fötu og tusku undir allt slefið sem ég hafði frussað út úr mér þegar talað var um Vigni.

Eftir þessa helgi er varla hægt að tala við Helgu Hrönn án þess að hún nefni það að Logi hafi verið í bílnum hennar. En hún hefur fullan rétt til þess. Ég myndi líka vera svona hefði línumaðurinn setið í mínum bíl. Þetta er það sem að helgin geymdi. Ásamt kvöldverði með Helgu á sunnudagskvöldinu þar sem atburðir helgarinnar voru ræddir sem voru enn í fersku minni og mun þessi helgi verða lifibrauð okkar í langan tíma. Oh litla Íslandið getur stundum verið æðislegt.

Skelli inn myndum til að sanna mál mitt he he




Inga Sif, sú sem bíður eftir símtali... allavega smsi ;)