miðvikudagur, 18. júlí 2007

Alveg að bresta á

Það fer alveg að koma að Krítarferðinni! Það eru 45 dagar þangað til - sem mér þykir ekki mikið þar sem við keyptum ferðina í janúar. Spennan er orðin gífurleg og ég get ekki beðið eftir að hitta fólkið mitt á Krít. Ég komst þó að því í gær að eitt parið sem við þekkjum er hætt saman þannig að stelpan (Christina) ætlar bara að reyna að hitta okkur en hún býr í Aþenu. Það er svo margt sem ég ætla að gera þarna úti og það er alltaf hægt að finna eitthvað nýtt að gera, nýja staði að skoða og svona. En nóg um Krít.

Við Bryndís kíktum á Flúðir á laugardaginn þar sem eitthvað lið úr símanum var þar og Kristínu leiddist án okkar. Þar var nú aldeilis drukkið og fengu sumir símtal frá okkur um nóttina (hehe) Einn var þó frekar fúll yfir að hafa ekki verið boðið með (Atli ég lofa að segja engum að það hafi verið þú) en við bætum úr því seinna. Stefnan var tekin á útilegu um helgina en ef veðrið verður eins og spáin sýnir þá held ég að það verði ekkert úr því. En sjáum til.

Svo er það verslunarmannahelgin. Það var búið að nefna Hellishóla en ég hef ekkert meira heyrt um það. Er eitthvað í gangi, einhverjar hugmyndir... eins og Eyjar! ;)

Inga Sif, sú sem langar til Eyja

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyrðu ef þú splæsir þá skal ég koma til eyja! en annars þá hef ég alllllls ekki efni á því OG fara til krítar þ.a. það er annaðhvort hjá mér :)

Mér er nokk sama annars hvað verður gert um versló, bara að það verði stuð með góðu fólki.

Litla Flísin sagði...

atli - ég fátæki námsmaðurinn get ekki splæst á þig mömmustrákinn. Það þarf bara að forgangsraða...
Þú veist að þar sem ég verð þar verður stuðið ;)

Nafnlaus sagði...

Það á að vera fínt veður hérna á suðvesturhorninu um helgina þ.a. núna hefuru enga afsökun fyrir að fara ekkí í útilegu! :D

En nei, þ.s. að ég þarf að keyra einn í vetur þá þarf ég þennann pening í bensín, ekki að eyða honum í eyjum :)