miðvikudagur, 4. júlí 2007

Ég bið að heilsa Ingu Sif

Já herrar mínir og frúr!

Ég var víst búin að lofa því að segja frá viðburðum helgarinnar svo hér kemur það:

Föstudagskvöldinu eyddi ég heima hjá mér í Super Mario Bros 3 ásamt Guðbjörgu og Bryndísi. Við sátum hér til miðnættis að reyna að rifja upp erfiðu borðin og leynibrögðin í hverju borði fyrir sig. Við hlógum og hlógum, vorum þvílíkt spenntar yfir þessu öllu saman alveg eins og í gamla daga. Ótrúlegt hvað maður man samt mikið ennþá... kannski af því að þetta var spilað daginn út og daginn inn hér áður. Þetta var alveg æðislegt, vonandi verður þetta gert aftur fljótlega.

Sama kvöld var Helga nokkur Hrönn stödd niður í miðborg Reykjavíkur ásamt Silju Rós. Þær ákváðu að væta kverkarnar "örlítið." Svo voru þær staddar á Kaffibarnum og þar hittum þær einn ákveðinn herramann nánar tiltekið Vigni Svavarsson handboltahönk. Fyrir þá sem ekki vita þá er hann línumaður og spilar með íslenska landsliðinu (þessi sæti nr.2). Helga Hrönn gaf sig á tal við hann og smellti myndum af honum. En þegar Helga var búin að tilkynna honum að ein vinkona sín sé ógó skotin þá sagðist hann biðja heilsa henni. Og ef þið vitið það ekki nú þegar þá er þessi vinkona hennar ÉG! Ég trúi því ekki enn að ég hafi ekki verið með henni, why god - WHYYYYYYY??? Sama kvöld hitti hún Fúsa (annan línumann) og Loga Geirs (skyttu/horn). Ég bara skil þetta ekki - ég sofandi og fullt af skemmtilegu liði á djamminu.

Þá þýddi ekkert annað en að skella sér í 101 kvöldið eftir og vonast eftir að rekast á þá. Við Bryndís sátum á Barðastöðum og drukkum allt vit frá okkur og fórum svo í bæinn með Helgu drivernum okkar. Við hittum Heimi bróðir of vini hans og vorum allt kvöldið á Hressó, ekki á röltinu eins og ætlunin var. Upp úr klukkan sex um morguninn vorum við stöllur svo að taka einn Laugaveg áður en heim yrði haldið og þá sjáum við hvar Logi Geirs situr á bekk í Bankastrætinu. Við fyndnu stelpurnar flautuðum á hann kölluðum eitthvað til hans og það endaði með því að hann kom að bílnum og bað um far heim ásamt vinkonu sinni. Við játtum því og úr varð klukkutíma rúntur með Loga í aftursætinu. Ég hélt að Helgan myndi hætta að anda hún var svo sjokkeruð. Við (uh eiginlega Helga) sagði honum allt um Inga Sif vs. Vignir og það endaði með því að Loginn tók niður númerið mitt og ætlar að láta Vigninn fá það (eða svo sagði hann). Þá var það ég sem fékk andarteppu og lá við að stelpurnar þyrftu að beita mouth to mouth og koma með fötu og tusku undir allt slefið sem ég hafði frussað út úr mér þegar talað var um Vigni.

Eftir þessa helgi er varla hægt að tala við Helgu Hrönn án þess að hún nefni það að Logi hafi verið í bílnum hennar. En hún hefur fullan rétt til þess. Ég myndi líka vera svona hefði línumaðurinn setið í mínum bíl. Þetta er það sem að helgin geymdi. Ásamt kvöldverði með Helgu á sunnudagskvöldinu þar sem atburðir helgarinnar voru ræddir sem voru enn í fersku minni og mun þessi helgi verða lifibrauð okkar í langan tíma. Oh litla Íslandið getur stundum verið æðislegt.

Skelli inn myndum til að sanna mál mitt he he




Inga Sif, sú sem bíður eftir símtali... allavega smsi ;)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þetta var GÓÓÓÐ helgi !! :D
Vonandi eigum við eftir að eiga fleiri svona um ævina og þá er sko eins gott fyrir þig unga dama að vera ekki heima hjá þér sofandi þegar VIGNIR SVAVARSSON er að djamma !! ;) hehe

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel með Vigni litla systir... Eitt tipps frá mér þó.. Ef þú ert googluð, þá finnst þessi síða þín ansi fljótt - og forsíðumyndin er ekki sú besta sem tekin hefur verið af þér.... Ef ég væri Vignir mundi ég all snarlega ýta á delete í símanum mínum hehehehehehe.....
kv. Fanney ráðgjafi

Litla Flísin sagði...

helgi - helgin var snilld. Bíð eftir annari svona :)

fanney - je je je. sástu þessa sem var á undan, hristumyndina af mér. á ég að setja psycho, venjulega, krúttlega að "sexypose" mynd inn?

Sjáum hvað gerist...

Nafnlaus sagði...

Já, ég sá sko hristumyndina - ég er þess fullviss að hún hafi verið skárri en mongólitamyndin á Austurvelli....
Myndin núna er ágæt, nema hvað að þú ert annaðhvort nývöknuð eða sauðdrukkin á þessari mynd - vel rauð í augunum og mun rauðari í framan hehehehehe...
kv. ljósmyndaséníið