Á fyrsta föstudegi ágústmánaðar í fyrra var ég að vinna en ég veit að ég skilaði ekki miklu af mér þann dag. Stefnan var nefnilega tekin á Vestmannaeyjar ásamt tveimur vinnufélögum og þið getið rétt ímyndað ykkur spennuna sem var í gangi. Þegar svo komið var til Þorlákshafnar breyttist spennan yfir í nett sjokk þegar Helga og Bryndís stóðu á planinu hjá Siggu vinkonu (sem ætlaði að geyma bílinn minn yfir helgina). Þær höfðu þá legið á netinu daginn áður og fundið sér miða til Eyja og komu surprise :) Þetta var æði!!! Helgin var frábær í alla staði og þessi litla rigning sem kom var bara partur af programmet. Á þriðjudeginum héldum við vinnufélagarnir aftur heim eftir langa helgi þar sem mikið var drukkið og dansað. Ég held að daginn eftir hafi vinnan heldur ekki verið svo góð hjá okkur hehe.
Í gær var síðasti dagurinn minn í vinnunni í bili. Smá sumarfrí og aðeins að anda. Þetta er nú ekki langt frí, byrja aftur mánudaginn 13. ágúst og fer svo út 1. sept. þannig að það verður heldur ekki löng törn. Ekki get ég sagt að ég hafi verið dugleg að vinna í gær enda í mikilli fýlu út í þetta blessaða fyrirtæki sem ég vinn hjá. Ég hafði því ekki slæma samvisku þegar ég var of lengi í kaffi og mat eða þegar ég sat bara að spjalla við vinnufélagana.
Í þessu stutta sumarfríi ætla ég að fara í litun, útilegu á Flúðir (já enginn sumarbústaður) og svo er stefnan tekin á Fiskidagana á Dalvík næstu helgi.
Vona að þið eigið góða helgi framundan og munið að fara varlega í umferðinni. Later...
Inga Sif, sú sem er í sumarfríi
föstudagur, 3. ágúst 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli