mánudagur, 17. september 2007

Komin heim í kuldann á klakanum

Já ferðin er því miður búin. Kom heim í fyrrinótt og þá var hitinn hér á landi ein gráða. Þessa tölu hef ég nú ekki bara séð í hálft ár eða svo. Úti var ég vön svona 32-36 stiga hita yfir daginn og á kvöldin var oftast 25-26 gráður.

En ferðasagan í stuttu máli:
Komið út um miðnætti svo þegar við fórum á barina "okkar" voru tveir þeirra lokaðir svo við kíktum á einn stað. Svo var sólbað í ég veit ekki hvað marga klukkutíma þegar ég tel saman yfir alla ferðina. En svo fór ég í þrjár ferðir; fyrst til eyjarinnar Santorini - LOVING IT - en allir Skala vinirnir fóru þangað saman. Það var ógeðslega vont í sjóinn á leiðinni til baka til Krítar og við þurftum að þola æluhljóð og lykt því fylgjandi. En við komumst heil til baka og skemmtum okkur mjög vel yfir þessu öllu saman. Svo skoðuðum við Bryndís Perlur Krítar ásamt bökurunum fjórum. Þetta var ferð þar sem skoðaður var hluti af eyjunni til dæmis gamall kastali, virki og munkaklaustur. Svo dýfðum við tánum ofan í Lýbíuhafið sem er á suðurhluta eyjarinnar og keyrðum um geggjað bratta og mjóa fjallvegi og nutum dagsins í botn. Síðasta ferðin var í Samaria gljúfrið með Bryndísi. Við löbbuðum samt ekki niður allt gljúfrið, fórum bara upp á móti hópnum. Þetta tók heilan dag og tók alveg ágætlega á.
Leigðum bíl í tvo daga og Bryndís keyrði alveg eins og Krítverjar gera - CRAZYNESS - Fórum í Gokart og vatnsrennibrautagarð, við Bryndís fengum okkur tattoo og allir versluðu sér eitthvað. Svo var það auðvitað djamm djamm djamm en samt ekki jafn mikið og síðast. Hittum fullt af skemmtilegu fólki og eyddum fullt af tíma á börum bæjarins. Þetta var frábær ferð í alla staði. Sé ekki eftir því að hafa þurft að bíða í 8 mánuði frá því við keyptum ferðina og þangað til við fórum. Loving it!

En nú tekur hið daglega líf aftur við með enga sól en fullt af rigningu, kannski smá snjó.

Inga Sif, sú sem var í himnaríki í tvær vikur

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Loksins blogg....ég var farin að sakna þín Inga mín. Ekkert blogg að lesa. Frábært að ferðin var skemmtileg.
Ég ætlaði að hringja í ykkur þegar ég kom upp á völl en þá var kl.13.30 og þið örugglega komnar upp í vél. En ég hitti Lilju Rut og spjallaði bara við hana í smástund:)
Knúsaðu stelpurnar fyrir mig:)
knúz frá Aarhus

Litla Flísin sagði...

Bylgja Dögg - já það hefði verið gaman að hitta þig á vellinum en flugið okkar var 13:50 þannig að við vorum farin út í vél. En Lilja Rut, var hún að fara út??? Did not know that! Stelpurnar fá stórt knús frá þér, þá er líka eins gott að þú gefir Rakeli Talíu og Sigfúsi eitt frá mér til baka :) Kiss kiss