Næstum mánuður síðan ég bloggaði og vá maður hvað það hefur mikið gerst síðan þá.
Fór norður með Önnu Dóru systir og Dagnýju Rut dóttur hennar í heimsókn til Fanneyjar systur og Daníels Týs. Þetta var frábær ferð þrátt fyrir að geta ekki heimsótt alla sem ég ætlaði mér að heimsækja. En vonandi verður stutt í næstu ferð og þá verður kíkt í aðrar heimsóknir.
Svo byrjaði ég í nýrri vinnu um mánaðamótin hjá Tryggingamiðstöðinni. Þar er ég þjónustufulltrúi í vátrygginga- og fjármálaþjónustu fyrirtækisins og er að fíla mig svona asskoti vel þar. Fjórir einstaklingar (ég meðtalin) á aldrinum 24-33, 2 kk og 2 kvk sem hlustum að glymrandi góða músík allan daginn og vinna þar á milli he he he. Ég er ekki komin almennilega inn í þetta allt saman strax, enda miðað við 6 vikna kennslu áður en farið er að vinna almennilega við þetta. Ég er EKKI að reyna að lokka inn nýja viðskiptavini, það sjá framhaldsskóla gaurarnir um sem mæta kl. 16:30 á daginn.
En loksins er ég komin með vinnu í Reykjavík og þarf ekki að vakna fyrir allar aldir til að smala saman liði og keyra til Keflavíkur. En þá kemur annað... Inga Sif er að fara að flytja til Njarðvíkur, nánar tiltekið Innri-Njarðvík, næstu mánaðamót þannig að það verður ekki lengi sem það tekur mig 30 mín. að aka í vinnuna. En hvað gerir maður ekki fyrir góða vinnu!
Svo er ég búin að kíkja í bæinn og svona, síðasta laugardag var afmæli hjá Önnu Rós og var dagurinn tekinn snemma í Mecca Spa, svo farið heim til hennar og borðað dýrindis mat og um kvöldið kom svo spákona um kvöldið. Ég ætla ekki að segja hvað hún sagði um/við mig í smáatriðum en segi bara að ég er bara ánægð og sátt við það sem hún sagði (ef það rætist).
Svo er það auðvitað pólitíkin........... HVER VILL D.B.E. SEM BORGARSTJÓRA??? Er fólk alveg búið að missa vitið??? Ég er svo gáttuð, get ekki tjáð mig meira um þetta mál en ég get sagt ykkur það að ég kom víst upp í hugann hjá nokkrum þegar þetta var tilkynnt þar sem hann Dagur er svarinn óvinur minn.
Jæja, búin að pústa. Allir ánægðir með bloggið mitt?
Inga Sif, sú sem hefur ekki bloggað lengi
fimmtudagur, 11. október 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Flytja til NJARÐVÍKUR?! Haaa? Viltu gjöra svo vel að skýra mál þitt kona góð.
Jeeeeeeej! Loksins komið nýtt blogg! Takk fyrir síðast, gangi þér vel að pakka;-)
Esther - Inga Sif á ekki pening til að kaupa eigin íbúð og þar sem foreldrar hennar ákváðu að kaupa 1 stk. raðhús þar í bæ neyðist stelpan til þess að fylgja þeim. Pant ekki fara á leigumarkaðinn, ég á samt ennþá eftir að athuga hvort ég vann í lottó á laugardaginn. Krossum fingurna!
Eygló - já við hittumst nú ekki mikið í þessari suður ferð þinni. En ég held ég verði að byrja að pakka þar sem mamma er næstum búin að tæma íbúðina og ég ekki búin að pakka einum hlut niður. obbo bobb
Veiiiiii nýtt blogg:)
Gaman að þér líkar vel í nýju vinnunni þinni, er nokkuð gaur sem heitir Gummi að vinna með þér? :)
En já politíkin...ussuss, vorum með þetta hérna í beinni í DK. Alveg þvílíkt...
knús á þig sæta mín;)
Bylgja Dögg
Vildiru frekar hafa Villa (ég veit ekki neitt, sá ekki neitt) Vill áfram sem borgarstjóra?? :)
ohh ég er svo ánægð með hann Dag, alveg yndislegur. Og meðan ég man þá þarf ég að senda honum email út af stöðumælalausu götunum...
Guðbjörg
Bylgja Dögg - það getur vel verið að hann Gummi sé að vinna hérna. Ég þekki ekki það marga hérna og Gummi klingir engum bjöllum.
Atli - Gamli góði Villi... nei ekki heldur. En hún Svandís Svavars væri góð :)
Guðbjörg - Já og biddu hann í leiðinni að byrja á Sundabrautinni, ein akrein í hvora átt bara til að koma henni af stað.
Mér finnst hann Dagur svo myndarlegur. Ekki amalegt að hafa eitt svona augnakonfekt sem borgarstjóra :)
Skrifa ummæli