fimmtudagur, 15. mars 2007

Að lesa og skrifa list er góð

Ég á mér mjög svo óspennandi líf þessa dagana. Ég geri eiginlega ekkert annað en að lesa og skrifa, bæði fyrir hópaverkefnið og svo líka fyrir B.A. ritgerðina mína fallegu.

Bækurnar fljúga milli fingranna og blöðum er endalaust flett. Samt er ég svo langt frá því að vera búin. Ég verð forever and ever hérna og ef þið viljið hitta mig kíkið þá endilega á Bókhlöðuna eða jafnvel í Odda við tækifæri. Mér þætti gaman að sjá öll börnin sem verða komin í heiminn áður en þessu lýkur hjá mér.

Inga Sif, sú sem skrifar og skrifar

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En hugsaðu þér að í sumar þá verður þú búin með námið þitt............ég á 4 ár eftir!

kv Atli

Litla Flísin sagði...

Atli - rétt er það Atli minn. Ekki gáfulegt að taka pásu í námi og ákveða svo að hætta og byrja í nýju fagi í nýjum skóla. En ég skal fagna þegar þú ert búinn.