mánudagur, 28. maí 2007

Bara útskriftin eftir

Síðasta einkunnin kom í dag, eða réttara sagt seinni einkunnin. Litla barnið mitt færði mér 9 í skjalið og ég er mjög ánægð með það.

Var í sumarbústað um helgina með nokkrum gærum og þvílík afslöppun! Eina sem böggaði mig var að við mættum með NINTENDO tölvuna mína en gátum ekki fengið hana til að virka. Ný tækni vs. gömul tækni kannski. En annars var þetta svaka fjör.

Inga Sif, sú sem er glöð :D

miðvikudagur, 23. maí 2007

Ég fékk 581 stig!

Ef þið svarið eftirfarandi spurningum játandi þá fáið þið stigin sem standa fyrir aftan spurninguna. Leggið þau saman og commentið á mig hver summan er. Því hærri stig því meira naughty naughty ;)

P.S. ekki fyrir viðkvæma :Þ

Ég hef:
Reykt hass - 10
Tekið sýru - 5
Gert það í kirkju - 25
Vaknað upp um morgun og ekki þekkt manneskjuna við hlið mér - 40
Gert það með einhverjum sem ég kynntist á netinu (sem ég þekki ekki vel) - 25
Gert það fyrir peninga - 100
Eyðilagt eitthvað (viljandi) - 20
Gert það á rúmi foreldra minna - 100
Barið einhvern - 50
Klætt mig í föt af hinu kyninu - 30
Gefið strippara peninga - 25
Verið ástfangin/n af strippara - 20
Kysst einhvern sem ég þekki ekki - 80
Reynt við vinnufélaga - 50
Keyrt full/ur - 50
Orðið Full/ur í vinnunni eða farið í vinnuna ennþá full/ur - 25
Notað kynlífsleikföng í samförum - 30
Farið í blackout - 20kr
Gert það í sundlaug - 20
Kysst einhvern af sama kyni - 10
Gert það með einhverjum af sama kyni - 20
Haldið framhjá - 100
Fróað mér - 25
Haldið framhjá með skyldmenni makans eða vini - 150
Gert oral - 5
Fengið oral - 5
Fengið eða gert oral í bíl á ferð - 25
Stolið einhverju - 10
Gert það með einhverjum sem hefur verið í fanglesi - 25
Búið til heimagerða klámmynd - 15
Farið í threesome - 50
Gert það úti í náttúrunni - 20
Verið í sama herbergi og einhver sem er að gera það - 25
Stolið einhverju sem er meira en 5000 króna virði - 25
Verið hrifin/n af fleiri en einum í einu - 50
Sagst elska einhvern án þess að meina það - 25
Hlaupið um nakin/n - 5
Hlaupið um nakin/n að degi til - 15
Verið handtekin/n - 5
Verið í fangelsi - 15
Pissað í sundlaug - 1
Farið í flöskustút - 5
Gert eitthvað sem ég sé eftir - 20
Gert það með besta vini/vinkonu - 20
Gert það með vinnufélaga - 25
Logið að maka - 5
Feikað fullnægingu með maka - 25
Gert það í tjaldi -10
Gert það með einhverjum sem ég hata -15
Sofið hjá 2-3 sömu helgina -60
Verið hrifin/nn af löggu -35
Verið til í að gera það með stelpu -25
Horft á klámynd og gert það á meðan -70

Inga Sif, sú sem hefur gert sumt en annað ekki ;)

þriðjudagur, 22. maí 2007

Ráðherrar

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. What a crap!
Pant ekki þurfa leita þangað.

Inga Sif, sú sem ekki treystir þessum manni

mánudagur, 21. maí 2007

Sumar, haust, vetur

Svona hafa síðustu þrír dagar verið. Ég veit ekki hvað ég á að halda - hvaða árstíð er núna?
Ég er farin að vinna á fullu en ekki búin að fá draumastarfið upp í hendurnar. Hvar get ég pantað svoleiðis?

Inga Sif, sú sem er ringluð og þreytt á veðrinu :(

miðvikudagur, 16. maí 2007

Einkunnir

Það er svoooo erfitt að bíða eftir einkunnum. Þess vegna er skemmtilegtast að fá þær þegar ég síst býst við þeim. Bara eftir að fá út úr lokaritgerðinni minni :)

Inga Sif; sú sem fékk 9 í Rannsóknum :D

laugardagur, 12. maí 2007

Ég er frjáls eins og fuglinn...

Skilaði ritgerðinni í gær.
What a happy day it was. :)

Inga Sif, sú sem er orðin fullorðin

þriðjudagur, 8. maí 2007

Ekkert hægt að segja

Er það bara ég eða hafa einhverjir fleiri verið að misskilja góðan söng í gegnum tíðina?
Þið sem sáuð Kastljósið í gær skiljið mig kannski, nei ég er ekki að setja út á hana Björk okkar heldur "listamanninn" Megas. Ég get svo svarið það að á bakvið hann hefur verið hundur að spangóla á sumum stöðum í laginu. Þetta var fáránlega ógeðslegt og ég vona að enginn kaupi nýja diskinn hans.

Inga Sif, sú sem er hneyksluð!!!!!!!!!!

mánudagur, 7. maí 2007

Síðasta vikan mín

Lengi hef ég beðið eftir að þessi vika renni upp, þá sérstaklega föstudagurinn. Ég er að leggja lokahönd á ritgerðina og búin að vera í fríi frá henni síðan 1. maí. Síðasta vika var vinnuvika og helgin fór að mestu í keyrslu þar sem ég "skrapp" á Egilsstaði með Heimi bróðir, Nínu og Arisi. Vá hvað það var gott að komast aðeins í burtu en ég hafði því miður ekki tíma til að kíkja upp á fjall. Geri það bara í sumar þegar við vinkonurnar tökum smá roadtrip - eða er það ekki annars ;)

Næstu dagar verða fljótir að líða og fyrr en varir verð ég komin með ritgerðina fullgerða í hendurnar. Eftir viku verð ég svo farin út á vinnumarkaðinn og verð þar lengi lengi. Það er mjög skrítin tilfinning! Vonandi fæ ég draumastarfið mitt en hvað það er hef ég ekki hugmynd um. Við hvað ætti ég eiginlega að fara að vinna, einhverjar hugmyndir?

Inga Sif, sú sem er aaaaaalveeeeeg að verða búin