Hver þarf að fara upp á Skaga á írska daga og partý þegar maður hefur náttúruperlu eins og Þórsmörk og fullt af nýju fólki til að kynnast.
Á fimmtudaginn var mér boðið í Þórsmörk af Bryndísi því Kristín á Space þurfti að sækja kærasta sinn og vini hans þangað inn eftir. Ég þáði það boð og við Bryndís héldum af stað upp eftir um kvöldmatarleytið á föstudagskvöldinu. Við fengum far með vinnufélaga Gunnars (kærasta Kristínar) og hittum svo Kristínu á Selfossi sem hafði skroppið upp í bústað til foreldra sinna. Af þeim sem voru með okkur í Mörkinni (ekki á Mörkinni á Skaganum) þekkti ég þessar fyrrnefndu tvær skvísur, hitt var allt bláókunnugt fólk. Ekki fannst okkur Bryndísi erfitt að kynnast þessu fólki og mingluðum vel. Um nóttina hélt ég algjörlega uppi stuðinu þegar ég var að spjalla við hann Gullis en það var maður sem einnig var staddur innfrá, þó ekki með okkur í hóp. Nóttin leið og það var ekki fyrr en 7 um morguninn sem við skriðum inn í tjald, vorum bara tvær eftir fyrir framan "varðeldinn" okkar ásamt einum strák sem leist ansi vel á djammúthaldið okkar. Næstu nótt vorum það líka við þrjú sem héldum lengst út, þó ekki jafn lengi og nóttina áður.
Veðrið spillti ekki ferðinni. Þó að það hafi rignt á laugardeginum böggaði það okkur ekki mikið, sjógallinn var bara dreginn fram og málið var leist. Gærdagurinn var sko æðislegur. Sól og blíða tók á móti okkur þegar við vöknuðum og við flatmöguðum í sólinni fram eftir degi. Hitinn var um og yfir 25 gráður og við vildum varla fara heim. Svo stoppuðum við Seljalandsfoss þar sem einn skellti sér ofan í fossin!!! og vorum ekki komin í bæinn fyrr en um átta í gærkvöldi.
Ég verð nú eiginlega að segja að þessi helgi verður ofarlega í huga lengi, þó er síðasta helgi enn fersk í minni og handboltaveislan er ekki gleymd. Nú er bara að draga fólk með sér í fleiri útilegur, næstu helgi er það þó Esjan. Hvað með helgina þar á eftir pípól???
En hvað segið þið, hvernig var djammið á írsku dögunum ;)
Inga Sif, sú sem langar fljótlega aftur í útilegu
mánudagur, 9. júlí 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Það hefur svei mér verið gaman hjá ykkur þessa helgina... :)
Mundu bara hvar ég verð um næstu helgi ;) hehe
Ég kem örugglega heim í endan júlí. Get ég ekki dopplað þig í göngutúr þegar ég kem heim? Áttu ekki nógu stóran bíl til þess að Jeppinn og stólinn hennar Rakelar komist fyrir í honum? þá mundum við ekki þurfa að taka strætó a.k.a the bus. Hlakka til að hitta þig, ég held að ég sakni þín, ég hitti þig svo oft í júní;)
knúsíknús
Bylgja Dögg
Helgi Hrannar - ég ætla ekki að tala um það við þig hvar þú verður næstu helgi útlandagella. Ég þarf að bíða og bíða eftir Krít á meðan þið hinar farið eitthvað annað LÍKA.
Bylgja Dögg - Ég skal koma með ykkur í göngutúr, Súbbinn tæki sko jeppan með léttum leik en skottið er eitthvað bilað, sjáum til hvort við náum ekki að redda því. ;) Ég læt ekki sjá mig í þeim stóra gula því nýja leiðarkerfið þeirra er FÁRÁNLEGT. En ég sakna þín líka, þetta þýðir bara að þú verðir að flytja heim frá Danmörku he he.
Fleiri útilegur því Þórsmörk var æði!!!
Ég panta útilegu 20-22 júlí því þá er ég í fríi heila helgi... því ég er náttúrulega ALLTAF að vinna :)
nafnlaus=Guðbjörg
Bryndís - já þetta var geggjuð helgi, ég veit ekki hversu oft ég get sagt það. :)
Guðbjörg - við vorum að spá í útilegu þessa helgi, við sjáum til hvað verður úr. Ertu búin að fá að vita með vaktir um verslunarm.h?
Já það væri mjöööööööög gott að fá ekki hringingar þegar nálgast miðnætti og maður spurður afhverju maður sé ekki í útileigu, þegar maður er að heyra fyrst af því þá! ;)
En það verður útileiga næstu helgi alveg pottþétt, þótt ég geti nú ekki mætt fyrr en á laug þá mæti ég galvaskur og heimta mikið stuð!
hallo hallo, langadi bara ad kasta kvedju a thig hedan fra Montreal !! Er villt ì nedanjardarveroldinni sem er herna :) hehe vid erum simalausar og getum thvi ekki haft mikid samband ... en thetta er buid ad vera rosa stud og vid sjaumst hressar fljotlega.
èg bid voda vel ad heilsa ollum hinum gaerunum !
kv. Helgi Hrannar
Skrifa ummæli