Eftir helgi þar sem var lært og leikið langt fram eftir kvöldum er alltaf gott að geta sofið lengur á mánudögum. Það versta er að þá dregst annað sem áætlað var að gera, svona eins og klára eitt stykki ritgerð. Nú fer að koma pressa og þá er gott að kíkja aðeins í vinnuna... svona til að setja enn meiri pressu. Ég hef daginn í dag, morgundaginn og hluta af miðvikudeginum til að skila af mér fullkomnu eintaki af ritgerðinni minni sem enn hefur ekki hlotið nafn. Gellan á skrifstofu félagsvísindadeildarinnar gaf leyfi fyrir frest á nafngift þangað til á miðvikudaginn.
Inga Sif, sú sem stendur í ströngu
mánudagur, 30. apríl 2007
þriðjudagur, 24. apríl 2007
Nafngiftir
Ég hef heyrt marga segja það að erfitt sé að ákveða nöfn fyrir börnin sín. Ekki er svo langt síðan að Bylgja Dögg þurfti að standa í því og hef ég fengið sögur af því, bara gott.
En að finna nafn á B.A. ritgerð - það ætti kannski ekki að vera mikið mál en fyrir mér er það svo. Ekki bætir úr skák að ég þarf að finna nafn á íslensku og ensku. Enska nafnið er þó komið - að hluta - en það íslenska vefst ansi mikið fyrir mér :S
Inga Sif, sú sem þarf að skíra á morgun

þriðjudagur, 17. apríl 2007
Hvað er ekki til???
Mig langar alveg ofboðslega að deila þessu með ykkur http://www.youtube.com/watch?v=aEKqU1fkYCI
Þetta er eitt af því sem ég var að skoða fyrir ritgerðina mína. Spennandi ekki satt?
Inga Sif, sú sem ekki tekur þátt í raunveruleikaþáttum :)

miðvikudagur, 11. apríl 2007
Skondinn s***ur
Já, hún Fanney systir er greinilega farin að hafa áhyggjur af karlmannsleysi mínu og eyðir stórum hluta vinnutíma síns vafrandi á netinu í leit að réttum dúdda (eða eitthvað svoleiðis).
Í dag sendi hún mér link á heimasíðu hjá einum sem henni finnst "matcha" við mig. Kíkið endilega á http://flisin.blogdrive.com Svolítið skondið að sjá aðra flís hér í boggheiminum, en svona er þetta bara - ég fæ aldrei að eiga neitt ein!
Páskarnir búnir, skólinn ennþá, ég að læra og allir sáttir bara?
Inga Sif, sú sem fékk Flís

föstudagur, 6. apríl 2007
Páskafrí með tilheyrandi áti
Langar bara að segja HEPPÍ ÍSTER allir saman. Þetta páskafrí er ekkert frí hjá mér, því miður :( verð að læra en samt verður eitthvað lyft sér upp.
Í gær kíkti ég ásamt Guðbjörgu og Helgu Hrönn smá rúnt og fengum okkur ís niður í 105, rétt við mörkin á 101. Þar var einhver stórskrítinn karl (ég er ekki að reyna að vera vond, hann var stórskrítinn) og var að bölva einhverjum strákling sem var að vinna þarna. Þetta endaði með því að kallað var á lögregluna og einn stór og einn lítill bíll kom á vettvang. Við stöllurnar sátum út í bíl og fylgdumst spenntar með öllu saman, eins og litlar stelpur á ævintýramynd í bíó. Endirinn varð sá að löggumennirnir töluðu bara við manninn á meðan hann kláraði hamborgarann sinn og svo fóru þeir í burtu í sínum flotta júníform. Þetta hefði sko ekki gerst neins staðar annars staðar en þarna, þó að við vorum í 105 þá vorum við á Laugarveginum þannig að það er miðbærinn ;)
Í kvöld er planið að kíkja í allt annað sveitarfélag og fara í gegnum göng sem liggja undir sjóinn. Þar verður einhver smá samkoma, ég þarf auðvitað að læra á morgun þannig að fyllerí er ekki alveg í boði fyrir mig. En það er ekkert vandamál að skemmta sér edrú svo þetta verður örugglega gaman.
Svo hlakka ég til á sunnudaginn því þá ætla ég að eyða deginum upp í sófa fyrir framan sjónvarpið og borða Freyju-ríspáskaeggið mitt :) Ætla að sjá til hvort lærdómurinn verði nokkur þann daginn. Verð bara að vera dugleg *hóst* *hóst* í dag og á morgun svo ég geti tekið frí á sunnudaginn. Æ já, það er líka kaffiboð hjá Heimi þannig að ég verð víst eitthvað að fara út úr sófanum.
Það er ekkert nema þvílíki veislumaturinn í boði svo þetta verða dýrindisdagar. Í gær var það grillað svínakjöt með fullt af gúmmelaði, í kvöld er það steiktur skötuselur með ananas og papriku (ég fæ alveg vatn í munninn) og svo veit ég ekki með framhaldið. Ég er allavega búin að biðja um það að ekki verði boðið upp á lambakjöt :) Sjáum til hvort óskin rætist...
Inga Sif, sú sem fær páskaegg eftir tvo daga :D

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)