Langt síðan ég hef litið hingað. Ég er búin að vera á fullu í vinnunni... þá meina ég FULLU! Tók samt frí vikuna eftir verslunarmannahelgina og það var ansi gott. Um versló var farið eina nótt í Úthlíð og þar var liðið mis skrautlegt (Bryndís var sú skrautlegasta). Henný + Joe + Sade + Inga Fjóla voru hérna 4. - 19. ágúst og við hittumst nokkrum sinnum, kíktum m.a.s. á djammið og var Henný orðin ansi skrautleg þegar komið var í bæinn he he.
Sigrún var með smá innflutningsteiti helgina eftir versló og var þar tekin góð upphitun fyrir Krítardrykkjuna. Við tvær vorum frekar skrautlegar og greyið hún Helga þurfti að þekkja okkur allan tímann í bænum. Henni hefur þó varla leiðst, við erum svo æðislegar ;)
Það er búin að vera geggjun í vinnunni, skólavertíðin á milljón en sem betur fer er farið að róast. Samt eru þá endursendingar eftir sem eru engu skárri.
Nú á ég bara eftir að vinna í 5 daga og svo er það Krítin mín sem ég er búin að bíða eftir síðan í janúar. Við erum öll að deyja úr spenningi, í hvert einasta skipti sem ég heyri í einhverjum sem er að fara út með mér er eyjan nefnd. Ekki leiðinlegt - öfundið þið mig ekki? Na na na bú bú
Inga Sif, sú sem er aaaaaalveeeeg að fara til Krítar :D
fimmtudagur, 23. ágúst 2007
föstudagur, 3. ágúst 2007
Litið til baka og horft fram á við
Á fyrsta föstudegi ágústmánaðar í fyrra var ég að vinna en ég veit að ég skilaði ekki miklu af mér þann dag. Stefnan var nefnilega tekin á Vestmannaeyjar ásamt tveimur vinnufélögum og þið getið rétt ímyndað ykkur spennuna sem var í gangi. Þegar svo komið var til Þorlákshafnar breyttist spennan yfir í nett sjokk þegar Helga og Bryndís stóðu á planinu hjá Siggu vinkonu (sem ætlaði að geyma bílinn minn yfir helgina). Þær höfðu þá legið á netinu daginn áður og fundið sér miða til Eyja og komu surprise :) Þetta var æði!!! Helgin var frábær í alla staði og þessi litla rigning sem kom var bara partur af programmet. Á þriðjudeginum héldum við vinnufélagarnir aftur heim eftir langa helgi þar sem mikið var drukkið og dansað. Ég held að daginn eftir hafi vinnan heldur ekki verið svo góð hjá okkur hehe.
Í gær var síðasti dagurinn minn í vinnunni í bili. Smá sumarfrí og aðeins að anda. Þetta er nú ekki langt frí, byrja aftur mánudaginn 13. ágúst og fer svo út 1. sept. þannig að það verður heldur ekki löng törn. Ekki get ég sagt að ég hafi verið dugleg að vinna í gær enda í mikilli fýlu út í þetta blessaða fyrirtæki sem ég vinn hjá. Ég hafði því ekki slæma samvisku þegar ég var of lengi í kaffi og mat eða þegar ég sat bara að spjalla við vinnufélagana.
Í þessu stutta sumarfríi ætla ég að fara í litun, útilegu á Flúðir (já enginn sumarbústaður) og svo er stefnan tekin á Fiskidagana á Dalvík næstu helgi.
Vona að þið eigið góða helgi framundan og munið að fara varlega í umferðinni. Later...
Inga Sif, sú sem er í sumarfríi

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)