Jamm, ný komin af leiknum - sveitt og ógeðsleg. Starði á Vigni en gat samt fylgst með leiknum ;) Hann fór ekkert inn á en var duglegur að naga á sér neglurnar á varamannabekknum he he.
Við fórum sex saman ég + Hrafnhildur + Guðbjörg + Bryndís + Helga Hrönn + Dóri. Bryndís veit ekki neitt um handbolta og ég eyddi ákveðnum tíma í að útskýra fyrir henni leikinn. Svo er að horfa á leikinn á morgun og sjá hvort þeir vinni ekki þann leik. Í dag töpuðu "strákarnir okkar" með tveggja marka mun (ætti ég kannski að segja landsliðið af því að þeir unnu ekki)
Svo er það ein afmæliskveðja í dag. Bylgja Dögg ofurmamma og megabeib er 24 ára í dag. Í vikunni átti hún gordjöss prinsessu og ég stal myndum af heimasíðum þeirra til að sýna ykkur skvísurnar :)
Svo er það ein afmæliskveðja í dag. Bylgja Dögg ofurmamma og megabeib er 24 ára í dag. Í vikunni átti hún gordjöss prinsessu og ég stal myndum af heimasíðum þeirra til að sýna ykkur skvísurnar :)
Til hamingju með afmælið og til hamingju Bylgja og Sigfús með stelpuna!
Svo í kvöld er brjáluð dagskrá. Þrítugs afmæli hjá Sævari mági og svo innflutningspartý hjá Önnu Rós. Svo held ég að það sé kominn tími til þess að heimsækja Hressó því þangað hef ég ekki komið í alllangan tíma. Ef þið viljið hitta mig þá bara mæta þangað :)
Inga Sif, sú sem styður strákana okkar

1 ummæli:
Takk kærlega fyrir kveðjurnar dúllan mín:D Það er greinilega hörkustuð á þér eins og vanalega:D
Djammaðu afmælisdjammið mitt líka í kvöld:)
Knús og kossar frá DK
Bylgja,Sigfús og litla skvísan
Skrifa ummæli